Til hamingju, Reykjavík! Einar Bárðarson skrifar 23. febrúar 2026 14:03 Reykjavík hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem áfangastaður fyrir matgæðinga. Veitingamenning borgarinnar er orðin hluti af aðdráttarafli hennar gagnvart erlendum gestum – ekki síður en náttúra landsins. Þar skiptir máli að hér hefur byggst upp faglegur styrkur, metnaður og þekking sem stenst alþjóðlegan samanburð. Ísland státar jafnframt af öflugu kokkalandsliði, Icelandic National Culinary Team, sem hefur skipað sér í fremstu röð á alþjóðlegum vettvangi. Veitingastaðir með Michelin-stjörnur og keppendur á palli í Bocuse d’Or keppninni eru líka staðfesting á metnaði greinarinnar. Þessi árangur endurspeglar þann faglega styrk sem býr í íslenskum veitingageira. Á sama hátt hefur Food & Fun í rúmlega tvo áratugi dregið hingað virt alþjóðlegt fagfólk og styrkt ímynd Reykjavíkur sem metnaðarfullrar matarborgar. Að baki Food and Fun stendur goðsögnin Siggi Hall, ásamt eiginkonu sinni Svölu Ólafsdóttur og fjölskyldu. Þau hafa með þrautseigju og samfellu haldið verkefninu gangandi og skapað vettvang sem nýtur virðingar bæði innanlands og utan. Baldvin Jónsson var lengi samstarfsmaður Sigga og vann hátíðinni brautargengi ásamt markaðsdeild Icelandair sem tók líka þátt í þessu frumkvöðlastarfi með þeim. Hátíð sem þessi – og árangurinn sem var rifjaður upp hér að ofan er gríðarlega mikils virði fyrir Reykjavík sem áfangastað. Allt eru þau skýr skilaboð um gæði, fagmennsku og sköpunarkraft. Borgin hefur stutt við Food & Fun og slíkur stuðningur skiptir máli. En veitingageirinn er ekki aðeins sýnileg hátíð og verðlaun á alþjóðlegum vettvangi. Hann er líka daglegur rekstur hundruða fyrirtækja sem glíma við raunveruleg og hagnýt úrlausnarefni: skort á bílastæðum í miðborginni, þröngt aðgengi að vöruafhendingu, fráflæðisvanda þegar kemur að sorpi og ýmsar skipulagslegar áskoranir sem snerta bæði starfsfólk og gesti. Þegar að því kemur virðist veitingageirinn vera vandamál borgarinnar en er enn ekki stofustáss hennar. Þar virðist stundum vanta heildstætt samtal. Vinstri höndin styður við ímynd og viðburði – en hin vinstri höndin gleymir að hlusta á þarfir daglegs rekstrar. Og það væri sannarlega æskilegt að hægri höndin fyndi sig líka. Ef Reykjavík ætlar að halda áfram að byggja upp orðspor sitt sem matarborg þarf samtalið að vera heildstætt. Stuðningur við hátíðir og alþjóðlegt kynningarstarf er mikilvægur – en jafn mikilvægt er að tryggja að innviðir, skipulag og daglegt starfsumhverfi veitingageirans standist þær væntingar sem við viljum skapa. Food & Fun, Kokkalandsliðið og öflugir veitingastaðir borgarinnar sýna hvað er hægt. Nú þarf að tryggja að umgjörðin haldi í við metnaðinn og ég treysti því að frambjóðendur í næstu borgarstjórnarkosningum komi til með að liðka fyrir umhverfinu okkar. Þangað til fögnum við og óskum Sigga, Svölu og öllum sem koma að Food and Fun með einum eða öðrum hætti til hamingju og þökkum þeim framlag þeirra til menningar og gleði. Höfundur er framkvæmdastjóri Sveit. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Einar Bárðarson Veitingastaðir Food and Fun Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar