Af hverju er engin slökkvistöð í Kópavogi? Jónas Már Torfason skrifar 23. febrúar 2026 10:01 Það er engin slökkvistöð í Kópavogi. Í efri byggðum Kópavogs er viðbragðstími slökkviliðs 15 til 19 mínútur. Það segir sig sjálft að þegar bráð hætta steðjar að skiptir hver mínúta máli. Þetta er óviðunandi staða og því hefur lengi verið ákall, bæði af hálfu slökkviliðsins og íbúa, um að byggðar séu slökkvistöðvar með sólarhringsmönnun víðar á höfuðborgarsvæðinu, sér í lagi þar sem viðbragðstíminn er of langur. Það stendur til að reisa slökkvistöð í Tónahvarfi, í efri byggðum Kópavogs, fyrir árið 2030. Vinna við undirbúning framkvæmda hefur hins vegar staðið í stað í eitt og hálft ár. Ástæðan er sú að Kópavogsbær, undir forystu núverandi meirihluta og bæjarstjóra Sjálfstæðismanna, hefur neitað að láta lóð af hendi til stöðvarinnar nema Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins greiði byggingarréttargjald fyrir lóðina. Slíkt hefur hingað til ekki tíðkast við uppbyggingu þessara sameiginlegu öryggisinnviða og er það fordæmalaus krafa af hálfu bæjarins sem hefur haldið uppbyggingu stöðvarinnar í Tónahvarfi í gíslingu. Það er á ábyrgð hvers sveitarfélags að sinna brunavörnum. Á höfuðborgarsvæðinu er þetta gert sameiginlega í gegnum byggðasamlag. Byggðasamlagið er fjármagnað með framlögum frá sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu, í hlutfalli við íbúafjölda. Frá upphafi hafa sveitarfélögin hins vegar lagt til lóðir undir slökkvistöðvar án þess að byggingarréttargjald sé tekið fyrir. Um þá ákvörðun Kópavogsbæjar að krefjast skyndilega byggingaréttargjalds má ýmislegt segja, til dæmis augljóst óréttlæti gagnvart öðrum sveitarfélögum sem þegar hafa lagt til lóðir vegna slökkviliðsstarfs í þágu höfuðborgarsvæðisins alls, þar með talið Kópavogs. Hér verður hins vegar látið nægja að benda á að pólitísk forysta bæjarins stendur í vegi fyrir uppbyggingu bráðnauðsynlegra öryggisinnviða í þágu bæjarbúa. Og fyrir hvað? Byggingarréttargjald af einni eða tveimur lóðum. Framvinda verkefnisins hefur verið engin frá því að Kópavogur lagði fyrst fram kröfu sína haustið 2024. Í ágúst 2025 var meginforsendum fjármálaáætlunar slökkviliðsins breytt vegna fyrirsjáanlegrar frestunar á uppbyggingu slökkvistöðvarinnar og enn sér ekki fyrir úrlausn málsins. Hjá því verður ekki komist að benda á að þetta er hluti af stærra stefi meirihlutans í Kópavogi, að forgangsraða skammtímaniðurstöðum í bókhaldi bæjarins fram fyrir nauðsynlega grunnþjónustu. Þjónusta við íbúa efri byggða Kópavogs er skert á nær öllum sviðum. Þótt meirihlutinn undir forystu Sjálfstæðisflokksins virðist lítinn áhuga hafa á að bæta hana er óforsvaranlegt að hann standi í vegi fyrir að tryggja betur öryggi íbúa. Starfsfólk slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vinnur þrekvirki í þágu Kópavogsbúa. En til þess að sinna þjónustunni á sívaxandi svæði þurfa innviðir að fylgja með. Það getur skipt öllu hvort viðbragðstími þeirra er 19 mínútur eða fjórar. Þessar 15 mínútur væru virði byggingarréttargjaldsins þó það væri ekki nema einu sinni sem þær teldu. Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Jónas Már Torfason Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga Skoðun Skoðun Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar