Var rekinn en hefndi sín: „Hefði verið búið að berja hann í spað“ Aron Guðmundsson skrifar 22. febrúar 2026 11:33 Darryl Morsell í leik með Keflavík fyrr í vetur. Vísir/Anton Brink Darryl Morsell hefndi sín á sínum gömlu vinnuveitendum í Keflavík í leik liðsins gegn ÍA í Bónus deildinni í körfubolta á dögunum. Morsell var rekinn frá Keflavík en átti stórleik fyrir ÍA gegn sínu gamla liði. Rætt var um frammistöðu hans í Körfuboltakvöldi á Sýn Sport Ísland.
Keflvíkingarnir Sævar Sævarsson og Jón Halldór Eðvaldsson voru sérfræðingar Körfuboltakvölds á föstudaginn síðastliðinn og þeir voru allt annað en ánægðir með varnarleik Keflavíkur í leiknum gegn ÍA og það hvernig þeim mistókst að stöðva Daryll Morsell, leikmann ÍA. Klippa: Rekinn frá Keflavík en náði fram hefndum Keflvíkingar létu Darryl Morsell fara fyrr á tímabilinu þegar þeir sömdu við Remy Martin en hvert lið má aðeins vera með einn bandarískan leikmann. ÍA samdi í kjölfarið við Morsell og kaldhæðni örlaganna í leiknum upp á Skaga á fimmtudaginn reyndist síðan sú að Morsell átti frábæran leik en Remy Martin sat meiddur á bekknum. Morsell setti niður 36 stig í umræddum leik, tók 9 fráköst og gaf 5 stoðsendingar en sérfræðingar Körfuboltakvölds voru allt annað en sáttir með það hvernig Keflvíkingar vörðust gegn sínum gamla liðsfélaga. „Það er nánast aldrei sett hendi upp á móti honum,“ sagði Sævar Sævarsson, einn af sérfræðingum Körfuboltakvölds. „Það er að koma þarna leikmaður sem er rekinn og þú færð ekkert meira högg fyrir sjálfstraustið heldur en þegar þú ert rekinn frá einu liði. Þú færð tækifæri hjá öðru liði og ert búinn að merkja það inn á dagatalið hvenær þú mætir þínu gamla liði svo þú getir sannað að þú sért alltof góður til þess að vera rekinn.“ Þetta hafi átt að vera leikurinn þar sem leikmenn Keflavíkur ættu að vera á tánum. „Sýna honum að það sé ástæða fyrir því að hann hafi verið rekinn, sýna að þeir ætli gjörsamlega að kafsigla honum í þessum leik.“ Það gerðist hins vegar ekki. „Hann fær dauðafrí skot. Sókn eftir sókn eftir sókn.“ Jón Halldór Eðvaldsson, annar af sérfræðingum Körfuboltakvölds lagði síðan sitt mat á stöðuna. Það vanti einfaldlega Keflvíkinga í lið Keflavíkur. „Ef það væru Keflvíkingar í raun og veru verið að spila fyrir Keflavík í þessum leik. Þá hefði hann aldrei skorað 36 stig af því það hefði verið búið að berja hann í spað. Þarna ertu bara með samansafn af erlendum leikmönnum og aðkomumönnum sem skilja þetta ekki.“ Sævar tók ekki undir orð Jóns Halldórs. „Ég ætla ekki að segja að þeim sé ekki sama.“
Körfuboltakvöld Keflavík ÍF ÍA Bónus-deild karla Mest lesið Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „stúkan er of þögul“ Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira