„Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“ Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 21. febrúar 2026 20:09 Svo heppilega vildi til að Hákon Þór Kristinsson, fjórtán ára, var heima vegna starfsdags og fljótur að hugsa þegar eldur kviknaði á heimili hans í gær. Aðsend Unglingspiltur kom í veg fyrir stórtjón þegar eldur kviknaði í rafmagnstöflu á heimili hans í Selási gær. Móðir hans segir atvikið hafa vakið hana til umhugsunar um hve gríðarmikilvægar eldvarnir á heimilum eru.
Hinn fjórtán ára gamli Hákon Þór Kristinsson vaknaði á heimili sínu við Selás, nærri Hellu, í gær við að reykskynjari á heimilinu var farinn í gang. Á hefðbundnum föstudegi hefði hann verið í skólanum um þetta leyti en vegna starfsdags vildi svo heppilega til að hann var í fríi. Við nánari athugun kom í ljós að eldur hafði kviknað í rafmagnstöflunni í þvottahúsinu á neðri hæð timburhússins. „Tekur leiðtogann á þetta“ „Þegar hann labbar inn [í þvottahúsið] þá er eldurinn kominn að dyrunum,“ segir Birna Sólveig Kristjónsdóttir, móðir Hákonar, í samtali við fréttastofu, en DV greindi fyrst frá. „Hann slekkur eldinn með slökkvitækinu, spreyjar bara út í eldinn,“ segir Birna. Um fimm mínútum síðar mætti Birna heim en þá hafði Hákon þegar hringt á slökkviliðið, sem er að sögn hennar um fjörutíu mínútur á leiðinni. Inni í þvottahúsinu var hundur í búri sem Hákon vissi ekki af. Hún hafi rokið inn í svartan reykinn til að sækja hundinn, sem kom heill úr herlegheitunum en var skoðaður af dýralækni til vonar og vara. Birna segir atvikið hafa farið mun betur en á horfðist. „Ég held hann hafi ekki fattað hann fór rétt að. Þegar ég kem þá tekur hann meira að segja bara stjórnina, segir: „Nei mamma, við eigum að vera úti.“ Hann tekur bara leiðtogann á þetta, slekkur eldinn, hringir á neyðarlínuna og rekur mömmu sína út þegar hún kemur á svæðið,“ segir Birna og hlær. Brýnir mikilvægi eldvarna Nokkuð tjón varð af brunanum, rafmagnstaflan eyðilagðist auk pípulagna, hitatúpa og inntaks fyrir vatn og rafmagn. Þá eyðilögðust þvottavél og þurrkari. Birna segir önnur verðmæti þó hafa sloppið. Hún álitur fjölskylduna mjög heppna, bæði fyrir þær sakir að eldvarnir voru í lagi á heimilinu og að atvikið hafi borið upp á starfsdegi í grunnskóla Hákonar. „Þetta vakti mann vel til umhugsunar um hvað það skiptir miklu máli að hafa reykskynjara sem er í lagi og slökkvitæki,“ segir Birna.
Slökkvilið Rangárþing ytra Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira