Hitti Gísla á Uppsölum á skyggnilýsingafundi Jakob Bjarnar skrifar 20. febrúar 2026 11:20 Ingibjörg Reynisdóttir hitti Gísla á Uppsölum óvænt á skyggnilýsingarfundi í gær. vísir/vilhelm Ingibjörg Reynisdóttir leikkona með meiru segir af því að hún hafi átt magnað og sannarlega óvænt stefnumót við Gísla á Uppsölum. Þessi ánægjulegi fundur þeirra átti sér stað á skyggnilýsingafundi.
Ingibjörg greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni en hún segir að von hafi verið á Darren Orlowski miðli og af því að hún hafi gaman af andlegum málefnum ákvað hún að skella sér með góðri vinkonu. „Kvöldið rann svo upp í gær og ég átti nú aðallega von á því að vera áhorfandi að því sem færi fram. Skyggnilýsingin fór vel af stað fyrir fullum sal af fólki og það má með sanni segja að Darren hafi verið mjög naskur strax frá upphafi. Darren Orlowski er breskur miðill og greinilega ekkert blávatn. Þegar hann var búinn að ná til tveggja aðila í salnum, sem höfðu náð sambandi við ástvini, vatt hann kvæði sínu í kross og sagði skyndilega: „Hér er kominn til mín maður sem er í heldur töturlegum, slitnum fötum. Hann er skítugur og eiginlega lyktandi. Hann er með sérkennilegan hatt og talar dálítið undarlega, gæti jafnvel verið mállýska. Hann býr við mikla einangrun, ekki langt frá sjó, og er með ær. Hann yrkir ljóð og spilar tónlist.“ Þarna var ég eiginlega farin að gapa af undrun, því betri lýsingu á einum ákveðnum manni er vart hægt að gefa.“ Salurinn hálfsaup hveljur Ingibjörg gat ekki annað en rétt upp höndina en enginn annar kannaðist við þessa lýsingu. Hún segist hafa stunið því upp, þegar kona kom með míkrófón að henni, og sagt að hún hefði skrifað bók um mann sem væri opinber persóna hér á Íslandi og hefði verið kallaður Gísli á Uppsölum. „Salurinn hálfsaup hveljur, því margir þekkja jú Gísla, og þegar ég spurði salinn hvort þau væru ekki sammála um að þetta gæti verið hann var heldur betur tekið undir.“ Darren upplýsti að Gísli væri þakklátur fyrir bókina. „Hann nefndi að ég væri búin að vera andleg frá unga aldri og sá hjá mér kristalla á hillu (sem ég á töluvert af). Hann tók fram að ég hefði greinilega gaman af að skrifa um fólk sem væri dálítið sér á parti og vitnaði í því samhengi í ákveðið verkefni (sem ég hef verið að basla við lengi). Hann tengdi mig við hafið og náttúruna, sem er sannarlega rétt.“ Skrifaði metsölubók um Gísla 2012 Að sögn Ingibjargar lýsti miðillinn því yfir að hann vonaðist til þess að bókin og Ingibjörg hafði gaman að því að upplýsa hann um að bókin hefði verið metsölubók 2012. „Ég tók það fram undir lokin að ég hefði alls ekki búist við þessu og að það væri sannur heiður að hann skyldi hafa vitjað mín hér í kvöld. Ingibjörg Reynisdóttir fór fyrir forvitnisakir á skyggnilýsingafund og hitti þar óvænt fyrir Gísla á Uppsölum.vísir/vilhelm Ég bætti við að ég hefði fundið fyrir sterkri tengingu við hann á þeim fimm árum sem ég hafði verið að skrifa bókina (í reynd talaði ég oft til hans) og því væri þetta ljúf staðfesting á því hversu stutt er á milli vídda.“ Gísla varð tíðrætt um í skrifum sínum hvort hann yrði á meðal stjarnanna þegar jarðvistinni lyki og Ingibjörg trúir því að hann sé einmitt þar. Hún þakkaði Gísla fyrir dásamlegt stefnumót.
Ástin og lífið Ísafjarðarbær Mest lesið Hvað veistu um... Mean Girls? Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Matthías Már með krabbamein Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lífið Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Lífið „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par Sjá meira