Handbolti

Sigur­ganga stráka Guð­jóns Vals heldur á­fram en tap hjá Bjarka

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar Gummersbach og heldur áfram að gera góða hluti.
Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar Gummersbach og heldur áfram að gera góða hluti. Getty

Guðjón Valur Sigurðsson stýrði Gummersbach til sigurs í fjórða deildarleiknum í röð í þýsku Bundesligunni í kvöld. Bjarki Már Elísson og félagar töpuðu aftur á móti í Meistaradeildinni.

Gummersbach vann í kvöld átta marka heimasigur á ThSV Eisenach, 35-27.

Gummersbach var fjórum mörkum yfir í hálfleik, 17-13.

Íslendingarnir voru rólegir í fyrri hálfleiknum, Elliði Snær Viðarsson nýtti eina skotið sitt en Teitur Örn Einarsson klikkaði á báðum skotum sínum.

Elliði bætti við einu marki í seinni hálfleik og skoraði því tvö mörk en Teitur komst ekki á blað. Hann gaf þó eina stoðsendingu inn á línuna. Miro Schluroff var markahæstur með tólf mörk.

Gummersbach er í sjötta sætinu með 29 stig, þremur stigum á eftir Kiel sem situr í fimmta sætinu.

Gummersbach hefur unnið 13 af 21 deildarleik tímabilsins og aðeins tapað fimm leikjum.

Íslenski landsliðsmaðurinn Bjarki Már Elísson og félagar hans í ungverska liðinu Vesprém koma stigalausir heim frá Póllandi eftir tap í Meistaradeildinni í handbolta í kvöld.

Vesprém tapaði með einu marki, 36-35, í æsispennandi leik á móti heimamönnum í Industria Kielce.

Bjarki nýtti öll þrjú skotin sín í fyrri hálfleiknum en Vesprém var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 19-17.

Bjarki fékk ekki að spila í seinni hálfleiknum. Vesprém var 34-33 yfir en tapaði síðustu tveimur mínútunum 3-1 og þar með leiknum 36-35.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×