Frekur Gordon minnti á Shearer og bætti markamet hans Ágúst Orri Arnarson skrifar 19. febrúar 2026 13:19 Alan Shearer hefur eflaust verið ánægður með fernuna hjá Anthony Gordon í gær. Mögulega er hann samt smá pirraður að sjá markamet sitt falla. getty Anthony Gordon var nú þegar búinn að skora þrennu þegar Newcastle fékk vítaspyrnu gegn Qarabag í 1-6 sigri í gærkvöldi, en hann harðneitaði að láta Nick Woltemade hafa boltann þegar liðið fékk vítaspyrnu.
Fyrirliði liðsins í leiknum, Kieran Trippier, stakk upp á því að Woltemade fengi að taka vítið en Gordon fiskaði spyrnuna og neitaði að afhenda honum boltann. Gordon skoraði síðan úr vítinu og tók þar með fram úr Alan Shearer sem markahæsti leikmaður Newcastle í sögu Meistaradeildarinnar. Með fernunni í gær hefur Gordon skorað tíu mörk fyrir Newcastle í Meistaradeildinni en Alan Shearer skoraði níu sinnum í Meistaradeildinni á sínum tíma. „Við erum allir þessum saman, en ég er sóknarmaður og vítaskytta liðsins, svo ég vil að sjálfsögðu skora eins mörg mörk og ég mögulega get“ útskýrði Gordon eftir leik. BBC rifjaði upp sambærilegt atvik hjá Alan Shearer árið 1999, í leik gegn Sheffield Wednesday í ensku úrvalsdeildinni. Þar var Shearer nú þegar kominn með fjögur mörk á blað þegar Paul Robinson fiskaði víti fyrir Newcastle. Robinson spurði Shearer þá góðfúslega hvort hann mætti taka vítið sjálfur en markahrókurinn hélt nú aldeilis ekki og benti honum á hvar hann ætti að standa meðan hann skoraði sjálfur úr spyrnunni. Atvikið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Shearer tók vítið sem Robinson fiskaði
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Sport Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Hlustaði ekki á liðið og baðst afsökunar Formúla 1 Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn „Áttum mun meira skilið úr þessum leik“ Fótbolti Mikil óvissa um þátttöku Alberts í mikilvægum landsleikjum Fótbolti Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Enski boltinn Fleiri fréttir Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Mikil óvissa um þátttöku Alberts í mikilvægum landsleikjum Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Valgeir þurfti fjórar mínútur til að skora fyrsta mark sitt fyrir Viborg Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Áttum mun meira skilið úr þessum leik“ „Flott frammistaða miðað við aðstæður“ „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum „Líf markmannsins að vera tilbúinn alltaf“ Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Ísak skoraði glæsimark í sigri Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Jón Dagur og félagar enn með fullt hús Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna Messi og Suárez í stuði Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Aflýstu leik vegna skutlukasts „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ „Þetta var alltaf mitt mark“ „Vonsviknir að ná ekki að nýta yfirburðina“ Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Sjá meira