Stutt gaman hjá stelpunum okkar í brekkunni Valur Páll Eiríksson skrifar 18. febrúar 2026 10:35 Elín Elmarsdóttir van Pelt var fyrri í brautina í dag en tókst ekki að klára ferðina. Mattia Ozbot/Getty Images Skíðakonurnar Elín Elmarsdóttir van Pelt og Sonja Lí Kristinsdóttir hafa lokið keppni á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu. Báðar féllu úr keppni í fyrri ferð dagsins í svigi.
Um var að ræða aðra grein sem þær stöllur taka þátt í á yfirstandandi leikum eftir að hafa keppt í stórsvigi á sunnudaginn var. Elín lenti þar í 43. sæti en Sonja Lí féll við í seinni ferð stórsvigsins og datt því úr keppni. Þær Elín og Sonja voru seinar af stað, númer 77 og 82 í röðinni, og brautin var orðin heldur erfið. Margar féllu úr keppni í dag, þá sérlega þegar seig á síðari hlutann, en aðeins 61 af 90 keppendum var á löglegum tíma. Elín var fyrri til í brekkuna í dag. Hennar ferð entist skammt þar sem henni skrikaði fótur og hún missti af hliði á brautinni. Hún fer því ekki seinni ferðina eftir hádegið og hefur lokið keppni á leikunum þetta árið. Sonju Lí tókst ekki heldur að klára sína ferð og er því einnig úr leik þetta árið.Mattia Ozbot/Getty Images Sonja Lí lenti þá í svipuðum vandræðum. Hún missti jafnvægið en tókst að redda sér. Hún var hins vegar dottin úr takti og nokkrum metrum neðar fór hún út fyrir brautina. Sonja hefur því einnig lokið keppni á leikunum þetta árið. Reynslan stendur hins vegar eftir fyrir þær Elínu og Sonju sem báðar eru aðeins tvítugar og að keppa á sínum fyrstu leikum. Greinin samanstendur af tveimur ferðum niður brekkuna en seinni umferðin hefst klukkan 12:30. Bandaríska goðsögnin Mikaela Schiffrin leiðir keppnina fyrir síðari ferð dagsins. Hún fór fyrri ferð sína á 47,13 sekúndum en Lena Durr frá Þýskalandi er önnur á 47,95.
Skíðaíþróttir Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Jelena kölluð inn í landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val HM-minning: Leið yfir móður hans þegar hún fékk fréttirnar Jelena kölluð inn í landsliðið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Er búinn að glíma við þunglyndi Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Dagskráin í dag: Golf og vináttulandsleikir Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City „Stúkan er of þögul“ Ítali í úrslitaleik Opna franska mótsins ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Danir andlausir gegn Kongó Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Ein karfa skildi liðin að Jafnir leikir hjá Íslendingunum Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Verða fleiri framúrakstrar í Mónakó? Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Lofar nýjum stjörnuleikmanni í Real Madrid á morgun Getur Wemby bjargað NBA? Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur Sjá meira