Enn enginn matur á boðstólum félagsmiðstöðvanna Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 17. febrúar 2026 18:09 Framleiðslueldhúsinu á Vitatorgi hefur verið lokað. Reykjavíkurborg Reykjavíkurborg hefur ekki fengið neinar upplýsingar um staðfest smit vegna listeríu-sýkingar sem kom upp í framleiðslueldhúsinu á Vitatorgi í byrjun mánaðar. Enginn heitur matur hefur verið í boði í félagsmiðstöðvum borgarinnar.
Í byrjun mánaðar var greint frá því að Reykjavíkurborg hefði lokað framleiðslueldhúsinu eftir að listeríubaktería fannst þar við reglubundna sýnatöku. Yfir níu hundruð máltíðir eru framleiddar í eldhúsinu á dag sem eru bæði sendar á heimili fólks eða á boðstólum í félagsmiðstöðvum. „Fyrstu dagana eftir að upp komst um listeríuna fengum við fréttir af nokkrum einstaklingum sem höfðu fundið fyrir óþægindum í meltingarvegi. Við höfum engar fréttir fengið af alvarlegum veikindum né fengið upplýsingar um staðfest smit,“ segir í skriflegu svari Hólmfríðar Helgu Sigurðardóttur, upplýsingafulltrúa velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, við fyrirspurn fréttastofu. Hún staðfestir að nú sé unnið að samningi við þriðja aðila um að taka að sér að elda matinn á meðan á framkvæmdum stendur á Vitatorgi. Borgarráð samþykkti nýlega að fara í framkvæmdir í eldhúsinu og hefur þeim verið flýtt samhliða framkvæmdum vegna smitsins. Vonir eru uppi um að samningar náist fyrir lok vikunnar. Á fundi borgarráðs í síðustu viku var lagt fram bréf velferðarsviðs með tillögu um samning um framleiðslu máltíða. Fulltrúar meirihlutans greiddu atkvæði fyrir því að fresta málinu. Einungis fulltrúi Sjálfstæðisflokksins greiddi atkvæði gegn frestuninni. Forgangsraða heimsendingunum „Forgangsraða þurfti matarþjónustunni í þágu þeirra sem búa heima, geta ekki geta eldað sjálf og komast ekki út á næstu félagsmiðstöð. Það á þá líka við um íbúa þjónustuíbúða, því þær eru líka heimili fólks,“ segir Hólmfríður. Því hefur enginn matur verið á boðstólum í félagsmiðstöðvunum þar sem þeir sem sækja þær eru líklegri til að annaðhvort geta eldað mat sjálfir eða farið annað til að nálgast mat. Hún tekur fram að unnið sé hörðum höndum að því að koma fullri matarþjónustu aftur af stað, enda sé mörgum afar mikilvægt að geta borðað hádegismat í góðum félagsskap.
Heilbrigðiseftirlit Heilbrigðismál Eldri borgarar Reykjavík Borgarstjórn Matvælaframleiðsla Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira