Annar bíll mögulega í „samfloti“ þegar banaslysið varð Kjartan Kjartansson skrifar 17. febrúar 2026 12:42 Banaslys varð þegar bíll hafnaði á hæðarrá við Miklubraut 5. febrúar. Vísir Vísbendingar eru um að annar bíll hafi verið í samfloti við þann sem hafnaði á stólpa með þeim afleiðingum að sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut í byrjun mánaðar. Rannsókn beinist meðal annars að því hvort að hraðakstur hafi átt þátt í slysinu.
Banaslysið átti sér stað á Miklubraut til móts við Hjálpræðisherinn að kvöldi 5. febrúar. Unglingspilturinn sem lést var farþegi í bíl sem hafnaði á stólpa hæðarrár áður en komið er að göngubrú yfir götuna þegar ekið er í vesturátt. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskaði eftir vitnum og myndefni af aðdraganda slyssins í síðustu viku. Guðmundur Páll Jónsson, lögreglufulltrúi, segir að töluvert af vitnum hafi gefið sig fram og að skýrsla hafi verið tekin af þeim. Þá hafi eitthvað af myndefni borist. Hann staðfestir að til skoðunar sé hvort að hraðakstur hafi átt þátt í slysinu. „Þeir virðast hafa verið tveir þarna í einhverju samfloti,“ segir Guðmundur Páll spurður að því sérstaklega hvort að aðrir bílar kunni að hafa komið við sögu. Vegagerðin sagði Vísi í síðustu viku að kaflinn þar sem slysið varð sé ekki á forgangslista hennar yfir framkvæmdir og að ástand hans hafi verið betra en annars staðar. Nokkuð djúp hjólför eru í Miklubraut í Ártúnsbrekku. Þar sem slysið varð eru hjólför í miðakrein en síður á ytri og innri akrein. Guðmundur Páll segist síður eiga von á því að ástand vegarins verði talið hafa átt þátt í slysinu.
Umferðaröryggi Samgönguslys Reykjavík Banaslys á Miklubraut 2026 Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira