Epstein sem Drakúla endurfæddur Jakob Bjarnar skrifar 17. febrúar 2026 11:38 Steinunn Ólína telur fulla ástæðu til að staldra við nú í kjölfar Epstein-málsins og stöðva gígantísk opinber fjárframlög til aðgerða sem við vitum lítið sem ekkert um. vísir/samsett Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona ritar afar athyglisverða grein sem hún birtir á Vísi undir yfirskriftinni: Hvernig höfnum við blóðsugu-hagkerfi heimsins og sameinumst um uppvaxtar-hagkerfi. Hún telur Epsteinmálið tilefni til vakningar, sem reyndar langafi hennar hafði boðað fyrir margt löngu síðan.
Í greininni segir hún af því að langafi hennar Valdimar Ásmundsson, sem fæddur er 1852, ritstjóri og þýðandi, hafi vitjað hennar. „Hann minnti mig á útgáfu sína og þýðingu á Drakúla frá 1900 eftir Bram Stoker. Stoker lét langafa í té frumdrög – mögulega ónotað efni – fyrir íslensku þýðinguna, en afi tók sér verulegt skáldaleyfi í sinni útgáfu bókarinnar Makt Myrkranna (Máttur myrkursins).“ Steinunn Ólína segir að Valdimar hafi endurskapað Drakúla sem pólitíska spennusögu þar sem greifinn var leiðtogi kynferðislega drifins alþjóðlegs elítuklúbbs. Þetta hljómar kunnuglega. Skelfilegar upphæðir renna í vafasamar aðgerðir Steinunn telur að slíkt fólk ætti aldrei að vera við völd en hér er hægara sagt en í að komast. Lýðræðið er í orði en ekki á borði. „Stöðug barátta almennings við stjórnvöld sem verjast því að fjárfesta í velferð almennings. Skelfilegar upphæðir almannafjár sem streymir í vafasamar og banvænar aðgerðir. Þjóðir sem gefa og styðja á meðan almenningur landa berst í bökkum.” Steinunn Ólína segir að langafi hennar, Valdimar Ásmundsson hafi vitjað hennar og minnt á þýðingu hans á Makt myrkranna. Steinunn Ólína segir þetta ekki svona í pottinn búið fyrir mistök, þetta sé kerfislægt og skipulagt. “Og nú, þegar við erum að átta okkur á því hvað Epstein-skjölin raunverulega afhjúpa, verður það ljóst: Almenningur hinna svokölluðu lýðræðisríkja, þarf að krefjast þess – land fyrir land – að leiðtogar okkar hætti tafarlaust að starfa sem umboðsmenn okkar í alþjóðasamskiptum.” Stöðvum ráðstöfun almannafjár til erlendra aðgerða Steinunn hvetur til þess að öll ráðstöfun almannafjár til erlendra aðgerða, hvort heldur er til hjálparstarfs, stríðs, vísinda eða tækni meðan við veltum því fyrir okkur til hvers er verið að ausa almannafé til þessara þátta. „Nú fræðumst við um viðurstyggilega glæpi sem framdir hafa verið. Við sjáum ógnvekjandi skipulag birtast okkur: sem lokkaði, fangaði og hneppti áberandi og heimsfrægt stjórnmálafólk í ánauð – vegna siðleysis og skorts á háttvísi – og gerði þau þar með að strengjabrúðum á sviði sem hin ofurríku stjórnuðu,“ segir Steinunn Ólína meðal annars í grein sinni.
Mál Jeffrey Epstein Bókmenntir Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Fleiri fréttir Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Sjá meira