Ekki innritað í fjóra leikskóla í Reykjavík í haust Lovísa Arnardóttir skrifar 13. febrúar 2026 10:28 Loka á leikskólanum Hagaborg tímabundið vegna framkvæmda. Reykjavíkurborg Ekki verður innritað í fjóra leikskóla í Reykjavík á þessu ári vegna framkvæmda. Leikskólarnir eru Hagaborg, Sæborg, Borg og Vinagerði. Foreldrar sem hafa valið leikskólana í umsókn eru hvattir til að breyta umsókn. Börn sem eru skráð í Hagaborg og Vonagerði verða færð annað.
Leikskólarnir sem ekki verður innritað í eru í þremur ólíkum hverfum. Hagaborg og Sæborg eru í Vesturbæ Reykjavíkur, Borg í Breiðholti og Vinagerði í hverfi 108 en hefur verið rekinn í Safamýri síðustu mánuði. Búist er við að 277 ný leikskólapláss verði í boði á árinu sem koma á móti þeim 169 plássum sem detta út vegna framkvæmda og viðhalds. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að mikilvægt sé að foreldrar yfirfari leikskólaumsóknir fyrir 2. mars 2026 þegar „stóra“ leikskólaúthlutunin hefst í Reykjavík. Plássum er úthlutað í kennitöluröð, þar sem elstu börnin fá boð fyrst, í þá skóla sem foreldrar völdu í umsókninni. Auk þess verður ekki innritað í einkarekna leikskólann Ársól en Reykjavíkurborg sagði nýverið upp leigusamningi vegna húsnæðis sem hýst hefur starfsemi leikskólans. Ellefu pláss í haust og svo fleiri á árinu Í tilkynningu frá borginni segir að á móti þeim 169 leikskólaplássum sem ekki verður hægt að nýta vegna framkvæmda og viðhalds á árinu er búist við að ellefu verði komin til baka strax í haust. Þá er gert ráð fyrir að hægt verði að bjóða 277 ný leikskólapláss á árinu. Af þeim eru 25 í Klettaborg í Grafarvogi þegar tilbúin, en einnig eiga eftir að bætast við pláss á leikskólunum Árborg í Árbænum, Brákarborg í hverfi 105, Hulduheimum í Grafarvogi, Seljaborg í Breiðholti og svo bætist við nýr leikskóli við Rafstöðvaveg sem tilheyrir þá Árbæ. Í tilkynningu um framkvæmdir við þessa leikskóla segir að viðbyggingin við Hulduheima sé langt komin og að frágangi lóðar á að ljúka í sumar. Við Seljaborg er verið að koma upp viðbótarhúsi og tengibyggingu sem flutt verður á lóð leikskólans í mars og er í smíðum og á frágangi lóðar að ljúka í vor. Þá segir að starfsemi muni hefjast að nýju í Brákarborg við Kleppsveg í apríl en leikskólinn er núna rekinn í gömlu húsnæði leikskólans við Brákarsund. Þá segir að húsnæði Árborgar hafi verið í viðamikilli endurnýjun sem eigi að ljúka í lok sumars. Á sama tíma verði viðbótarhús á lóð Árborgar afhent og þá verði hægt að hefja undirbúning fyrir leikskólastarf. Nýr leikskóli í Fossvogi og við Rafstöðvarveg Í tilkynningu segir að einingar fyrir leikskólann við Rafstöðvaveg séu væntanlegar til landsins í maí og að húsið verði risið í september samkvæmt núverandi áætlun. Gangi það eftir á starfsemi að geta hafist í lok árs 2026. Þá er gert ráð fyrir mikilli fjölgun leikskólaplássa 2027 og að um mitt það ár verði búið að fjölga plássunum um 327. Þá verði búið að byggja nýjan leikskóla á Fossvogsbletti og bæta við viðbótarhúsum við leikskóla Vesturborgar og Grandaborgar í Vesturbænum, Jörfa í hvefi 108, Maríuborgar í Grafarholti og Hólaborgar í Breiðholti. Fyrirvari er þó settur við þetta í tilkynningu borgarinnar um að alltaf muni taka einhvern tíma að ráða í allar lausar stöður og ákveðinn stígandi þarf að vera í innritun nýrra plássa. Loka Hagaborg og fækka plássum í Sæborg Í tilkynningu kemur einnig fram að búið sé að ákveða að færa starfsemi Hagaborgar í nýuppgert húsnæði Grandaborgar við Boðagranda í lok febrúar. Með því komist starfsemi Hagaborga, sem nú er á þremur stöðum, undir eitt þak. Það sé ljóst að viðhaldsframkvæmdir á húsnæði Hagaborgar verði umfangsmiklar og því verði leikskólanum lokað frá og með 1. september. Því verði ekki innritað í Hagaborg fyrir næsta skólaár en innritað verður í Grandaborg. Öll börn sem eru með vistun í Hagaborg færast sjálfkrafa yfir í Grandaborg og sömuleiðis býðst öllu starfsfólki Hagaborgar að gera slíkt hið sama. Börnin í Hagaborg sem eru á elsta ári fara yfir í grunnskóla og munu þá pláss losna sem verður úthlutað í Grandaborg í stóru innrituninni sem er fram undan. Þá kemur fram að í Sæborg þurfi að fækka plássum á meðan unnið er að stækkun leikskólans og því verði ekki innritað í haust. Þau börn sem eru í leikskólanum geta þó verið þar áfram. Foreldrum er bent á að breyta vali sínu í umsókn í Völu fyrir 2. mars. Foreldrar þurfa að breyta umsókn Þá segir að vegna flutnings starfsemi Borgar/Arnarborgar í Ármúla og viðhaldsframkvæmda við Borg/Fálkaborg verði ekki innritað í leikskólann Borg haustið 2026. Foreldrar eru sömuleiðis hvattir til að breyta umsókn sinni í Völu. Þá verður leikskólanum Vinagerði lokað og börn flutt í aðra leikskóla. Öll sem hafa valið Hagaborg, Sæborg eða Borg í umsókn um leikskólapláss eða beðið um flutning þangað þurfa að breyta umsóknum sínum. Ef einhverjar spurningar vakna hafið samband við innritun.leikskolar@reykjavik.is.
Leikskólar Reykjavík Skóla- og menntamál Mest lesið Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Erlent Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Innlent Segist saklaus Innlent Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Innlent Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Innlent Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Erlent Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Innlent Reiknað með stormi vestantil og hríðarviðvaranir í gildi Veður „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ Innlent „Allt lýðræðið þurrkað út“ Innlent Fleiri fréttir Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Óvissustig í Súðavíkurhlíð „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Besta fimleikafólk Danmerkur gefur góð ráð og sýnir á Íslandi „Allt lýðræðið þurrkað út“ Lilja lagði til breytingu á formennsku þingflokks Nýr listi Samfylkingarinnar í Árborg kynntur Segist saklaus Djúpstæður ágreiningur og íþróttasalur umbreytist í tónleikahöll Bjargað af þakinu eftir að bíllinn fór í kaf Úthlutaði 91 milljón til félagasamtaka Þungar refsingar undir í máli sem fer enn einn hringinn Sakar minnihluta um ódýra pólitík í aðdraganda kosninga „Þetta þýðir einfaldlega lengri biðtími“ Rúv er óháð hagsmunum stjórnmála og einkaaðila Þarf að greiða þriggja milljóna málskostnað parsins Stefán Vagn leiðir þingflokk Framsóknarflokksins Axel segist fórnarlamb subbulegra og fullkomlega tilhæfulausra ærumeiðinga Skólameistarinn fær ekki að leiða ráðherra til vitnis Refsingar Shamsudin-bræðra og Samúels þyngdar Sýknudómur í hryðjuverkamálinu ómerktur Stofna óháðan flokk og segja að Hildur muni víkja þeim úr nefndum og ráðum Fyrsti listi Viðreisnar í Reykjanesbæ kynntur Staðan ekki breyst í samræmi við lýsingar ráðherra Bærinn vilji taka hluta Smáralindar á leigu fyrir 1,5 milljarða Sjá meira