Úr barnaskemmtunum á klúbbinn Magnús Jochum Pálsson skrifar 13. febrúar 2026 10:36 Anna Bíbí fékk Unni Eggertsdóttur, fyrrverandi Sollu Stirðu, með sér í lið á klúbbaremixinu af „Bing Bang“. Tónlistarkonan Anna Bíbi ákvað að gera „klúbbaremix“ af Latabæjarslagaranum „Bing Bang“ og fékk með sér Unni Eggertsdóttur, sem lék Sollu stirðu um árabil. Unnur söng lagið mörg hundruð sinnum á barnaskemmtunum á sínum tíma og segir að nú sé komið að klúbbnum.
Allir sem hafa séð sjónvarpsþættina Latabæ þekkja grípandi slagarann „Bing Bang“ sem Solla stirða syngur í lok hvers þáttar. Tónskáldið Máni Svavarsson samdi lagið upprunalega 1999, það kom svo út sem smáskífa árið 2006 og hefur síðan verið tekið á öllum barnaskemmtunum á vegum Latabæjar. Bing bang dingalingaling/Fyndin orð sem fá mig til að hreyfast/ Bing bang dingalingaling/þessi orð þau þýða hvað sem er“ Á miðnætti kom lagið út í glænýjum klúbbabúningi á vegum pródúsentsins Önnu Bíbíar sem fékk sterkan liðsauka með sér. Anna Bíbí Wium Axelsdóttir er 21 árs gamall Grafarvogsbúi sem vinnur í sértækri frístnud, Sunnudagaskólanum í Grafarvogskirkju og á tækniborðinu hjá Improv Ísland. Samhliða þessu eyðir hún frítíma sínum í að „músíkast“ eins og hún orðar það sjálf. „Sérstakt áhugamál hjá mér er að gera „remix“ af alls konar lögum. Fyrir þremur árum gaf ég út remix af Kisutangó og fékk það einhverja smá athygli. Í haust datt mér svo í hug að „remixa“ eitthvað Latarbæjarlag en þættirnir voru í miklu uppáhaldi þegar ég var barn,“ segir Anna Bíbí um það hvernig lagið kom til. Unnur og Anna nutu samstarfsins. „Síðan leið smá tími þar til Unnur poppaði upp á Tik Tok hjá mér þar sem hún sýndi gamla klippu af sér skemmta sem Solla stirða. Þá kom upp sú hugmynd að hafa samband við hana og bjóða henni að vera með á laginu,“ bætir hún við. „Mér finnst svo gaman hvað Latibær lifir góðu lífi. Ég var ekki nema sautján ára þegar ég tók við hlutverki Sollu stirðu og fékk að skemmta yfir fimm hundruð sinnum um allan heim, í þremur heimsálfum,“ segir Unnur Eggerts. Solla og Íþróttaálfurinn skella sér í splitt. „Það eru komin ansi mörg ár síðan ég setti bleiku kolluna á mig en mér mun alltaf þykja vænt um hana. Þannig þegar Anna heyrði í mér með að gera „djamm-remix“ af „Bing Bang,“ sem kom nota bene fyrst út áður en hún fæddist, fannst mér bara frábært að stökkva á það. Ég hef sungið „Bing Bang“ yfir fimm hundruð sinnum á barnaskemmtunum, er ekki bara komið að því að syngja það á klúbbunum næst?“ segir hún. Anna segir samstarfið hafa gengið vel og Unnur komið með góða orku inn í ferlið. „Mér finnst klikkað að Unnur hafi verið til í að hoppa á þetta lag með mér og ég er gríðarlega þakklát. Unnur er algjör stemningskona og kom með geggjaða orku inn í allt ferlið! Við kíktum svo til Mána Svavars sem samdi lagið og leyfðum honum að heyra remixið. Það var æðislegt og algjör heiður,“ segir Anna Bíbí.
Tónlist Börn og uppeldi Mest lesið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Bíó og sjónvarp Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Lífið samstarf „Það má herma“ Tíska og hönnun Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Lífið samstarf Fleiri fréttir Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Madonna með heitustu dansmynd ársins Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum „Pólitíkusar sem tala á þennan veg: Fokk jú“ „Þú getur ekki ráðist að mér þegar ég er að borða með ömmu minni“ Peabo Bryson er látinn Datt af sviðinu og beint í skurð „Stundum verður maður að segja fokk it“ „Við skoðuðum þennan markað og hann var allur í lausu lofti“ Íslenskur tónlistararfur loksins aðgengilegur öllum Mugison þakkar innilega fyrir sig Segir gagnrýnina til marks um normalíseringu barnagirndar Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Blóð, sviti og tár skemmtilegra en að prumpa út lögum Bó átti að syngja á nýju lagi Stefáns: „Örlögin gripu í taumana“ Stendur með Bríeti í deilunni við Pálma Þá var kátt í höllinni Shakira sýknuð Þrjú hundruð kórbörn frumflytja lag Herra Hnetusmjör fagnar fyrir fullri Laugardalshöll „Þetta var erfiðasta ár lífs míns“ Nennti ekki að meika það Stjörnufans hjá Birni á Edition Fjarsamband alltaf erfitt Eurovision fer fram í vikunni en hlustunartölur hríðfalla Tónleikum Yasiin Bey frestað með dags fyrirvara fram á haust Sjá meira