Vegkaflinn þar sem banaslysið varð ekki talinn mjög illa farinn Hólmfríður Gísladóttir og Oddur Ævar Gunnarsson skrifa 12. febrúar 2026 06:59 Vegir verða yfirfarnir aftur í vor og framkvæmdum forgangsraðað eftir ástandi þeirra. Vísir/Vilhelm Vegkaflinn þar sem banaslys varð á Miklubraut á dögunum er ekki á forgangslista Vegagerðarinnar yfir vegaframkvæmdir. Vegagerðin segir það ekki munu koma í ljós fyrr en skýrsla Rannsóknarnefndar samgönguslysa liggur fyrir hvort ástand vegarins hafi átt þátt í slysinu.
Sautján ára piltur lést í slysinu sem átti sér stað í síðustu viku, þegar bifreið sem ekið var austur á Miklubraut hafnaði á stólpa til móts við hús Hjálpræðishersins. Rannsókn málsins stendur enn yfir og hefur lögregla rætt við fjölda vitna. Fréttastofa fékk í kjölfar slyssins fjölda ábendinga um malbikið á Miklubraut; að hafa þyrfti varann á þegar skipt væri up akreinar vegna djúpra rása sem komnar væru í malbikið. Fyrirspurn var send á Vegagerðina vegna málsins og sagði í svörum að stofnunin væri mjög meðvituð um ástandið á vegakerfinu. Malbikið á höfuðborgarsvæðinu hefði verið yfirfarið í haust og yrði yfirfarið aftur í vor. Vegagerðin vildi gjarnan gera meira en framkvæmdum hefði verið forgangsraðað á grundvelli haustúttektarinnar miðað við það fjármagn sem stofnunin hefði til ráðstöfunar. „Kaflinn þar sem slysið varð var ekki á forgangslistanum, þannig að ástandið var betra þar en annarsstaðar. Að því sögðu eru hjólför víða en misdjúp auðvitað og því ráðlagt fyrir ökumenn að hyggja að því. Það er alveg mögulegt að eftir að við förum yfir ástandið aftur í vor að forgangsröðunin breytist,“ segir í svörum Vegagerðarinnar.
Samgönguslys Reykjavík Umferðaröryggi Banaslys á Miklubraut 2026 Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira