Burnley sótti lygilegan sigur og Villa vann þökk sé sjálfsmarki Ágúst Orri Arnarson skrifar 11. febrúar 2026 21:49 Hannibal Mejbri minnkaði muninn fyrir Burnley og fleiri mörk fylgdu strax í kjölfarið. Luke Hales/Getty Images Burnley sótti hádramatískan 3-2 sigur gegn Crystal Palace en öll fimm mörkin í fyrri hálfleik. Aston Villa þurfti að bíða mun lengur en uppskar mark undir lok leiks og fagnaði 1-0 sigri gegn Brighton. Nottingham Forest og Wolves gerðu markalaust jafntefli.
Crystal Palace - Burnley 2-3 Burnley lenti tveimur mörkum undir eftir rétt rúman hálftíma á Selhurst Park. Jörgen Strand-Larsen þakkaði traustið í byrjunarliðinu í fyrsta sinn og skoraði bæði mörkin. Þrátt fyrir það tókst Burnley að snúa leiknum og taka 3-2 forystu áður en fyrri hálfleik lauk. Hannibal Mejbri minnkaði muninn, Jaidon Anthony jafnaði og Jefferson Lerma setti boltann síðan óvart í eigið net. Burnley stóð síðan af sér áhlaup Crystal Palace í upphafi seinni hálfleiks og undir lok leiksins. Markmaðurinn Martin Dubravka tryggði Burnley sigurinn með magnaðri vörslu í uppbótartíma eftir skot Ismaila Sarr af stuttu færi. Sigurinn var gríðarmikilvægur fyrir Burnley, sem er í 19. sæti deildarinnar, nú níu stigum frá öruggu sæti. Aston Villa - Brighton 1-0 Aston Villa - Brighton 1-0 Fátt var um færi í fyrri hálfleik en bæði lið mættu beittari til leiks í seinni hálfleik. Brighton veitti fyrsta höggið þegar vinstri bakvörðurinn Ferdi Kardioglu skaut skoti sem var varið í stöngina. Ezri Konsa og Morgan Rogers svöruðu með fínum marktilraunum fyrir Aston Villa skömmu síðar. Staðan hélst þó markalaus alveg fram á 86. mínútu þegar Tyrone Mings skallaði boltanum í Jack Hinselwood og þaðan í netið. Aston Villa styrkti stöðu sína í 3. sæti deildarinnar með þessum sigri og situr nú þremur stigum frá Manchester City en sex stigum frá Arsenal sem á leik til góða. Nottingham Forest - Wolves 0-0 Heimamenn í Skírisskógi voru mun hættulegri en botnliðið sem heimsótti þá, en tókst ekki að skora. Lorenzo Lucca þreytti frumraun sína fyrir Forest og fór illa með algjört dauðafæri, þegar fimm Forest leikmenn sóttu á aðeins einn varnarmann Wolves. Varamaðurinn Igor Jesus fór ekki betur með sín færi þegar hann kom inn á í seinni hálfleik og markalaust jafntefli varð niðurstaðan. Wolves er í langneðsta sæti deildarinnar en Forest er í 17. sætinu, þremur stigum fyrir ofan West Ham og níu stigum fyrir ofan Burnley.
Enski boltinn Mest lesið Ísraeli fékk rautt fyrir að breyta hornfána í vopn og skjóta úr því Fótbolti Rooney tekur fyrir kjaftasögur Enski boltinn Segir Heimi skorta skilning og vill hann burt Fótbolti Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Enski boltinn Sjáðu mörkin í Osló og Dorgu nota Ödegaard eins og hundasleða Fótbolti Stórbrotin varsla Grétars tryggði Haukum montréttinn: „Endar alltaf í svona vitleysu“ Handbolti Mattías Kjeld valdi KR Íslenski boltinn Lygilegt sigurmark HK í Vestmannaeyjum Handbolti „Ég verð augljóslega að taka þetta tap alfarið á mig“ Handbolti Braut kynferðislega á Andy Carroll Enski boltinn Fleiri fréttir Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Skytturnar skotnar í kaf í Brighton Sjá meira