„Þjóðin syrgir með ykkur“ Lovísa Arnardóttir skrifar 11. febrúar 2026 17:35 Carney ræddi við blaðamenn. Vísir/AP Mark Carney forsætisráðherra Kanda segir alla þjóðina syrgja með íbúum Tumbler Ridge í Kanada. Tíu eru látin í kjölfar skotárásar í framhaldsskóla í gær. Ástæða skotárásar og tengsl geranda og fórnarlamba hafa ekki verið gefin upp. Fram hefur komið að árásarmaður sé kona en það hefur ekki verið staðfest.
Carney ræddi við fréttamenn fyrir utan þinghúsið í Ottawa fyrr í dag. Þar sagði hann daginn erfiðan fyrir Tumbler Ridge og Kanada. „Foreldrar og afar og ömmur, systur og bræður í Tumbler Ridge munu vakna án einhvers sem þau elska,“ sagði Carney. „Þjóðin syrgir með ykkur. Kanada stendur með ykkur,“ bætti hann við. „Við komumst í gegnum þetta,“ heldur Carney áfram. „En núna er tími til að koma saman, eins og Kanadamenn gera við hræðilegar aðstæður sem þessar, til að styðja hvert annað, syrgja saman og vaxa saman.“ Fram kemur í erlendum miðlum að Carney hafi breytt dagskrá sinni og frestað ferð innanlands og til Þýskalands vegna atburðanna. Níu látin og tuttugu særð Alls voru níu skotin til bana í skotárásinni í framhaldsskóla í Tumbler Ridge í Bresku Kólumbíu. Tíu eru látin ef árásarmaður er talinn með. Nöfn fórnarlamba eða árásarmannsins hafa ekki verið gefin upp. Greint var frá því fyrr í dag að þegar lögreglumenn komu á vettvang hefðu þeir fundið lík sex fórnarlamba og lík árásarmannsins sem hafði framið sjálfsvíg. Einn lést á leið á sjúkrahúsið og tvö fundust látin á heimili í nágrenni við skólann. Um tuttugu særðust í árásinni og voru tveir fluttir á spítala með alvarlega eða lífshættulega áverka. Í umfjöllun AP segir að búið sé að bera kennsl á grunaðan árásarmann en að ástæða skotárásarinnar sé enn óljós og að lögregla rannsaki enn tengsl á milli árásarmanns og fórnarlambanna. Í umfjöllun BBC kemur fram að árásarmanni hafi verið lýst sem dökkhærðri konu og að það hafi ekki enn verið staðfest að tengsl séu á milli skotárásanna í heimahúsi og skólanum þó það teljist líklegt. Heilsugæslan í Tumbler Ridge í gær. Vísir/AP Þekkir hvert fórnarlamb Um er að ræða mannskæðustu skotárás í Kanada síðan árið 2020, þegar byssumaður í Nova Scotia drap 13 manns og kveikti elda sem leiddu til dauða níu annarra. Tumbler Ridge er smábær með 2.700 íbúa. Bærinn er í kanadísku Klettafjöllunum, í meira en 1.000 kílómetrum norðaustur af Vancouver og nálægt fylkismörkum Alberta. Í Tumbler Ridge-framhaldsskólanum eru 175 nemendur í 7. til 12. bekk, samkvæmt vefsíðu fylkisstjórnarinnar. Í umfjöllun AP um skotárásina er haft eftir Darryl Krakowka, bæjarstjóra bæjarins, að hann hafi kallað samfélagið „stóra fjölskyldu“. „Ég brotnaði saman,“ sagði Krakowka. „Ég hef búið hér í 18 ár. Ég þekki sennilega hvert einasta fórnarlamb.“
Kanada Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Forystan sé búin að missa klefann Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira