Múmían rís í fjórða sinn Magnús Jochum Pálsson skrifar 11. febrúar 2026 10:47 Brendan Fraser og Rachel Weisz munu snúa aftur í fjórðu myndinni um Múmíuna, tæpum þrjátíu árum eftir að sú fyrsta kom út og tuttugu árum á eftir þeirri síðustu. Universal Hollywood-stjörnurnar Brendan Fraser og Rachel Weisz munu snúa aftur í fjórðu myndinni í Múmíu-myndaröðinni. Sú fyrsta kom út 1999, varð gríðarvinsæl og gat af sér tvær framhaldsmyndir.
Múmíumyndirnar með Fraser eru ævintýramyndir í anda Indiana Jones þar sem blandast saman hasar, rómans og hryllingur. Fyrsta myndin var lausleg endurgerð á The Mummy frá 1932 og gerðist á þriðja áratug síðustu aldar. Þar sagði frá ævintýramanninum Rick O'Connell (Fraser) sem ferðast til Egyptalands með bókasafnsfræðingnum Evelyn (Weisz) í leit að fjársjóði en endar á að vekja múmíu Imhoteps til lífsins. Brendan Fraser og Rachel Weisz voru ansi sæt saman í The Mummy um árið. Fraser og Weisz léku aftur saman í framhaldinu, The Mummy Returns árið 2001, en hann lék einn í þeirri þriðju, The Mummy: Tomb of the Dragon Emperor árið 2008. Serían var endurræst með Tom Cruise í aðalhlutverki árið 2017 en viðtökurnar voru svo dræmar að hætt var við að gera fleiri myndir til viðbótar. Stúdíóið New Line Cinema er líka búið að gera sína eigin útgáfu af The Mummy í leikstjórn Lee Cronin sem kemur út síðar á þessu ári - allt morandi í múmíum. Universal Pictures hefur gefið út að fjórða myndin muni koma út 19. maí 2028 en það er ekki ólíklegt að það breytist. Framleiðsluteymið Radio Silence, sem samanstendur af leikstjórunum Matt Bettinelli-Olpin og Tyler Gillett, hefur verið orðað við leikstjórn myndarinnar. Þeir hafa áður leikstýrt hryllingsmyndunum Ready or Not (2019), Scream (2022) og Scream VI (2023). Brendan Fraser hefur verið í miklum endurkomuham síðustu ár eftir að hafa verið bolað úr Hollywood um tíma í kjölfar þess að hafa greint frá kynferðislegri áreitni sem hann var beittur. Hann hlaut mikið lof fyrir leik sinn í The Whale (2022) og Killers of the Flower Moon (2023) og lék síðast í japönsku myndinni Rental Family (2025).
Hollywood Bandaríkin Egyptaland Mest lesið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Harry Styles setti heimsmet Lífið Það allra besta að gráta í gufu Lífið Geirvörtur og latex vekja athygli í París Tíska og hönnun Listabarn á leiðinni Lífið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Fleiri fréttir Fyrsta mynd umdeildrar gervigreindarleikkonu í framleiðslu Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Danny Glover með Alzheimer Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Michael Byrne er látinn Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar James Burrows látinn Laufey Lín er mætt til Springfield Ef meðferðarlotan beri ekki árangur verði hann ekki í næstu þáttaröð Tyra Banks kærir Netflix fyrir ærumeiðingar Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Margaret Kerry er látin Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Harbour rýfur þögnina Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Sjá meira