Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ Sindri Sverrisson skrifar 10. febrúar 2026 13:48 Arne Slot segir lítið sem ekkert mega út af bregða svo Liverpool verji sæti sitt í Meistaradeild Evrópu úr þessu. Getty/Michael Regan Arne Slot, stjóri Liverpool, er vel meðvitaður um þá alvarlegu stöðu sem liðið hefur komið sér í, í 6. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Hann segir þessa leiktíð þá langerfiðustu á sínum ferli.
Liverpool þarf nauðsynlega á sigri að halda gegn Sunderland á útivelli annað kvöld. Eftir 2-1 tapið gegn Manchester City á sunnudaginn er Liverpool með 39 stig í 6. sæti, fjórum stigum frá Chelsea og sennilegu Meistaradeildarsæti. Klippa: Slot á fundi fyrir leik við Sunderland Liverpool væri raunar í 7. sæti, fyrir neðan Brentford, ef markið sem Rayan Cherki skoraði á sunnudaginn hefði fengið að standa. Risakaup síðasta sumars hafa alls ekki gengið upp og í 25 deildarleikjum í vetur hafa Englandsmeistararnir tapað alls átta leikjum og gert sex jafntefli. Standings provided by Sofascore BBC spurði hvort þetta væri erfiðasta leiktíðin á ferli Slot og Hollendingurinn svaraði: „Sú langerfiðasta. Allar mínar leiktíðir í þjálfun hefur allt verið svo jákvætt. Ég held að ég hafi aldrei verið búinn að tapa tveimur leikjum í röð [þar til í vetur]. Þetta er nýtt fyrir mér og ég er óvanur þessu,“ sagði Slot. „Ég held að okkur líði ekkert eins og að við höfum bara tapað tveimur af síðustu sautján leikjum. Jafntefli er eins og tap fyrir okkur. Leikmennirnir vita hverjar kröfurnar eru hjá Liverpool og við erum ekki að standast þær kröfur. Þeir finna vonbrigðin,“ sagði Slot. Arne Slot has admitted that missing out on Champions League qualification would have a big impact on Liverpool’s summer transfer budget. pic.twitter.com/NsQm0Rphc6— The Athletic | Football (@TheAthleticFC) February 10, 2026 Eins og fyrr segir er líklegt að fimm efstu lið úrvalsdeildarinnar komist í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð, í stað fjögurra, en það er alls kostar óvíst að það dugi Liverpool. Missi liðið af sæti í Meistaradeildinni yrði félagið af miklum fjármunum, og það veit Slot sem segir Liverpool þurfa að vera nánast fullkomið það sem eftir er leiktíðar. „Ef að við verðum ekki í Meistaradeild Evrópu þá verður þetta alls ekki ásættanleg leiktíð. Þegar ég kom hingað og við gátum bara keypt Federico Chiesa, þá var það eftir leiktíð í Evrópudeildinni. Þetta hefur rosaleg áhrif á rekstur félagsins. Ég er fullkomlega meðvitaður um það,“ sagði Slot.
Enski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Fleiri fréttir Newcastle - Bournemouth | Halda norðanmenn uppteknum hætti? Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag Sjá meira