Búið að ákæra og jafnvel dæma í tengdum málum Hólmfríður Gísladóttir og Bjarki Sigurðsson skrifa 10. febrúar 2026 12:11 Alda Hrönn staðfestir að lagt hafi verið hald á símtæki í fangaklefum í tengslum við rannsókn málsins. Vísir/Arnar „Formleg rannsókn hófst fyrir um ári síðan. Við vorum í aðdraganda þess farin að bera kennsl á mynstur og tengingar. Og þá hófum við þessa formlegu rannsókn, það er að segja líka að tengja nokkur mál saman sem eru svona hefðbundin burðardýrsmál,“ segir Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræðingur og staðgengill lögreglustjórans á Suðurnesjum, um umfangsmiklar aðgerðir sem áttu sér stað í síðustu viku. Ellefu voru handteknir í tengslum við skipulagða brotastarfsemi, íslenskir og erlendir ríkisborgarar.
Greint hefur verið frá því að löggæsluyfirvöld á Íslandi ásamt systurstofnunum erlendis hafi upprætt fjölþjóðlegan skipulagðan brotahóp, sem staðið hefur fyrir umfangsmiklum innflutningi á fíkniefnum frá Suður-Ameríku til Evrópu, m.a. á kókaíni. Aðgerðirnar fóru fram í tengslum við samræmda rannsókn lögreglu- og ákæruvaldsins á Íslandi, í Litháen og á Spáni, með stuðningi Europol og Eurojust. Brotahópurinn er talinn hafa aflað sér um 4 milljóna evra í ólögmætum hagnaði með stórfelldu fíkniefnasmygli. Alda segir vonir standa til að tekist hafi að uppræta stóran hluta starfseminnar. Bjarki Sigurðsson fréttamaður, sem ræddi við Öldu, spurði hana að því hvort höfuðpaurinn í málinu hefði einhverjar tengingar við Ísland. „Ja, það er auðvitað þannig að fólk hefur þekkingu á svona því landsvæði þar sem að er verið að vinna og í þessu tilviki að þá er þessu eins og svona, virðist vera, stýrt utan frá, bara erlendis frá, og fíkniefnin streyma, í þessum tiltekna brotahópi, til landsins erlendis frá og þetta er skipulagt erlendis,“ svaraði Alda. Alda sagðist hvorki geta staðfest heimildir fréttastofu um að höfuðpaurinn hafi verið handtekinn í Litháen né hvort Íslendingar hafi verið ofarlega í keðjunni. Hún segir hins vegar þegar búið að ákæra og jafnvel dæma í tengdum málum á meðan rannsókn stóra málsins, hinnar skipulögðu brotastarfsemi, stóð yfir. „Já, nú er það þannig að þegar að svona stórt mál er til rannsóknar í svona langan tíma, þá auðvitað slæðast inn mál þar sem það eru burðardýr að koma til landsins, jafnvel aðrir að taka við og svo framvegis. Og vegna þess ramma sem við höfum til dæmis í lögum um meðferð sakamála, þá höfum við almennt tólf vikur til að gefa út ákæru, sem er mjög skammur tími. Þannig þannig að það er þegar búið að ákæra einhverja, jafnvel dæma, en á meðan heldur þessi rannsókn áfram með tilliti til þessarar skipulögðu brotastarfsemi.“
Lögreglumál Fíkniefnabrot Suðurnesjabær Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Sjá meira