Réttað yfir manni sem er grunaður um að nauðga barni og konu sinni Árni Sæberg skrifar 9. febrúar 2026 11:57 Maðurinn mætti fyrir dómara í morgun. Vísir/Vilhelm Aðalmeðferð hófst í morgun í máli Héraðssaksóknara á hendur manni, sem grunaður eru um að hafa nauðgað ungri stúlku og eiginkonu sinni og birt myndefni af nauðgununum á netinu.
Maðurinn sætir ákæru fyrir að nauðga sex ára stúlku tvívegis og eiginkonu sinni ítrekað. Hann sætir einnig ákæru fyrir að hafa ljósmyndað athæfi sitt og birt ljósmyndir af því á netinu. Þetta kemur fram í ákæru á hendur manninum sem þingfest var í Héraðsdómi Reykjavíkur í þann 20. janúar síðastliðinn. Dóms að vænta á næstu fjórum vikum Aðalmeðferð í málinu hófst klukkan 09:15 í morgun og áætlað er að henni ljúki klukkan 16. Málareksturinn fer fram fyrir luktum dyrum. Samkvæmt lögum um meðferð sakamála skulu þinghöld háð í heyranda hljóði en dómari getur þó ákveðið, að eigin frumkvæði eða eftir kröfu ákæranda, sakbornings eða brotaþola, að þinghald fari fram fyrir luktum dyrum, telji hann það nauðsynlegt. Algengasta ástæða þess að þinghöldum er lokað er til þess að vernda nafnleynd og hagsmuni brotaþola. Samkvæmt sömu lögum skal kveða upp dóm innan fjögurra vikna frá lokum aðalmeðferðar, ellegar þarf að flytja mál á ný, nema dómari og aðilar telji það óþarft. Því má ætla að dómur verði kveðinn upp á næstu fjórum vikum. Lögreglu barst ábending að utan Líkt og fréttastofa fjallaði um á dögunum höfðu foreldrar stúlkunnar, sem maðurinn sætir ákæru fyrir að nauðga, enga vitneskju um að brotið hefði verið kynferðislega gegn henni fyrr en lögregla hafði samband. Samkvæmt heimildum fréttastofu komst lögregla á snoðir um málið í gegnum alþjóðlegt samstarf. Lögreglufulltrúi í Evrópu fann myndefnið, greindi uppruna þess og var lögreglu hér á landi í kjölfarið gert viðvart. Foreldrar barnsins komu af fjöllum þegar að lögregla hafði samband.
Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Dómsmál Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira