Stökk sem var bannað í hálfa öld Sindri Sverrisson skrifar 9. febrúar 2026 11:31 Ilia Malinin í miðju heljarstökki aftur á bak, á Vetrarólympíuleikunum um helgina. Getty/Jared C. Tilton Bandaríski listskautaprinsinn Ilia Malinin er þegar komin með sín fyrstu Ólympíugullverðlaun um hálsinn. Þar hjálpaði til hve vel honum tókst að gera stökk sem þótti of hættulegt og var bannað í 50 ár.
Malinin er 21 árs og er þekktur sem í sögunni sem „Quad-guðinn“ eftir að hafa orðið sá fyrsti í sögunni til að ná að gera fjórfaldan Axel í keppni. Það var hins vegar annað stökk sem vakti mesta kátínu hjá áhorfendum, þegar Malinin sýndi sín tilþrif í liðakeppninni á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó um helgina. Þar gerði hann nefnilega heljarstökk aftur á bak, sem ekki hafði verið leyft á leikunum síðan árið 1976. Stökkið var bannað á sínum tíma og var ein helsta ástæðan sú að það þótti einfaldlega of hættulegt enda keppendur ekki með hjálm eða annað til að hlífa höfðinu ef illa færi. Reglunum í keppni á listskautum var hins vegar breytt árið 2024 og því eru leikarnir í ár þeir fyrstu síðan í Innsbruck árið 1976 þar sem hægt er að vinna sér inn stig með því að framkvæma heljarstökk aftur á bak. Bandaríkjamaðurinn Terry Kubicka framkvæmdi stökkið í Innsbruck á sínum tíma og varð þá fyrstur til þess. Hin franska Surya Bonaly gerði það þó einnig á Vetrarólympíuleikunum árið 1998, þegar hún hafði dottið snemma í sínum æfingum og vissi að hún hefði misst af verðlaunum. Hún náði að lenda á öðrum fæti en fékk hins vegar engin stig fyrir þessi tilþrif sín vegna þess að þau voru bönnuð. Malinin á eflaust eftir að endurtaka stökkið og freista þess að vinna fleiri verðlaun í Mílanó en hann keppir í stutta prógramminu á morgun og frjálsa prógramminu á föstudaginn.
Skautaíþróttir Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Jelena kölluð inn í landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val HM-minning: Leið yfir móður hans þegar hún fékk fréttirnar Jelena kölluð inn í landsliðið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Er búinn að glíma við þunglyndi Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Dagskráin í dag: Golf og vináttulandsleikir Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City „Stúkan er of þögul“ Ítali í úrslitaleik Opna franska mótsins ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Danir andlausir gegn Kongó Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Ein karfa skildi liðin að Jafnir leikir hjá Íslendingunum Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Verða fleiri framúrakstrar í Mónakó? Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Lofar nýjum stjörnuleikmanni í Real Madrid á morgun Getur Wemby bjargað NBA? Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur Sjá meira