Stjórnarformaðurinn verður forstjóri Reykjalundar Atli Ísleifsson skrifar 9. febrúar 2026 08:54 Svana Helen Björnsdóttir og Sólveig Hildur Björnsdóttir. Svana Helen Björnsdóttir hefur verið ráðin forstjóri Reykjalundar. Hún hefur gegnt starfi forstjóra tímabundið frá því í lok nóvember síðasta árs, þegar fyrrum forstjóri sagði starfi sínu lausu. Svana Helen var áður formaður stjórnar Reykjalundar.
Í tilkynningu segir að Svana Helen sé með doktorsgráðu í kerfisverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og starfi jafnframt sem aðjúnkt við skólann. „Hún er bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi, situr í stjórn SORPU bs. og er varaformaður SL lífeyrissjóðs. Reykjalundur er óhagnaðardrifið einkahlutafélag í eigu SÍBS og fagnar 80 ára afmæli á þessu ári. Á starfssögu Reykjalundar hafa tæplega 50.000 einstaklingar notið þjónustu endurhæfingarinnar. Samhliða ráðningu Svönu Helenar hefur Sólveig Hildur Björnsdóttir verið kjörin formaður stjórnar Reykjalundar. Sólveig hefur setið í stjórn SÍBS, eiganda Reykjalundar, frá árinu 2014,“ segir í tilkynningunni. Haft er eftir Svönu Helen að Reykjalundur hafi í meira en áttatíu ár verið burðarás í íslenskri endurhæfingu og byggt upp einstaka þekkingu sem á rætur í öflugu starfsfólki og miklum mannauði. „Reynslan sýnir að árangur endurhæfingar sjúklinga byggir fyrst og fremst á samstilltu átaki þverfaglegra teyma þar sem fagmennska, virðing og samvinna ráða för. Sú þverfaglega endurhæfing sem veitt er á Reykjalundi hefur skilað raunverulegum bata og lífsvon hjá fjölda einstaklinga og á þeim trausta grunni verður áfram byggt. Þekking starfsfólksins og velferð sjúklinga er og verður ávallt leiðarljós í vegferðinni fram á við. Fram undan eru margvíslegar framkvæmdir til að bæta húsnæði og aðstöðu. Einnig liggja fyrir metnaðarfull áform um áframhaldandi uppbyggingu. Framtíð Reykjalundar er björt,” segir Svana Helen. Þá segir Sólveig Hildur að Reykjalundur standi á tímamótum. „Rekstrarhallinn er mun meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir og við stöndum jafnframt frammi fyrir húsnæðisvanda sem brýnt er að leysa. Svana Helen hefur gegnt starfi forstjóra síðustu tvo mánuði, samhliða því að leiða stjórnina, og þekkir því reksturinn afar vel. Það skipti sköpum að fá leiðtoga sem gæti tekist á við áskoranirnar án tafar og mat stjórnar var að ráðning hennar væri ábyrgasta skrefið til að tryggja samfellu í rekstri og skýra, faglega forystu. Starfsfólkið á Reykjalundi og sú sérhæfða fagþekking sem í því býr er undirstaða þeirrar öflugu endurhæfingarþjónustu sem hér er veitt. Svana Helen er sterkur og reynslumikill leiðtogi með víðtæka þekkingu sem mun nýtast sérstaklega vel í því mikilvæga verkefni að styðja þetta öfluga fagfólk og byggja starfsemina enn frekar upp á þessum umbreytingatíma. Sérhæfð endurhæfing, eins og sú sem veitt er á Reykjalundi, er ein hagkvæmasta heilbrigðisþjónustan sem völ er á og gefur einstaklingum raunhæft tækifæri til að taka virkan þátt í samfélaginu á ný eftir áföll eða veikindi. SÍBS og Reykjalundur vinna náið saman að því að styrkja stoðir starfseminnar á Reykjalundi til framtíðar og eiga í góðu og uppbyggilegu samtali við stjórnvöld um næstu skref.“
Vistaskipti Mosfellsbær Tengdar fréttir Pétur hættur sem forstjóri Reykjalundar Pétur Magnússon hefur sagt upp sem forstjóri Reykjalundar og hefur gert samkomulag við stjórn stofnunarinnar um starfslok. Svana Helen Björnsdóttir, stjórnarformaður Reykjalundar, mun gegna starfi forstjóra þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn. 24. nóvember 2025 12:43 Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Fleiri fréttir Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Sjá meira
Pétur hættur sem forstjóri Reykjalundar Pétur Magnússon hefur sagt upp sem forstjóri Reykjalundar og hefur gert samkomulag við stjórn stofnunarinnar um starfslok. Svana Helen Björnsdóttir, stjórnarformaður Reykjalundar, mun gegna starfi forstjóra þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn. 24. nóvember 2025 12:43