Eru ekki að sjá meðalstór fyrirtæki fara í vöxt við núverandi aðstæður
Afkoma Eikar undir lok síðasta árs var nokkuð umfram áætlanir greinenda en fasteignafélagið boðar jafnframt mikla aukningu í tekjum og rekstrarhagnaði í „metnaðarfullri“ spá sinni fyrir yfirstandandi ár. Stjórnendur segja hins vegar að meðalstór fyrirtæki séu ekki að fara í mikinn vöxt við núverandi efnahagsaðstæður og vanskil eru að mestu bundin við veitinga- og skemmtistaðarekstur sem eigi í erfiðleikum.