Kerfisbundin fákeppni og áhrifamiðuð beiting samkeppnisréttar í íslensku samhengi í ljósi EES-réttar Halldóra L. Jóhannsdóttir skrifar 8. febrúar 2026 10:01 Samkeppnisrétturinn á Íslandi byggist á þeirri meginforsendu að virk samkeppni sé grundvöllur hagkvæmrar nýtingar framleiðsluþátta og verndar hagsmuna neytenda, sbr. 1. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005. Markmið laganna takmarkast ekki við viðbrögð við einstökum brotum heldur beinast jafnframt að því að vinna gegn þeim markaðsaðstæðum sem í sjálfu sér leiða til skertrar samkeppni, svo sem skaðlegri fákeppni, samþjöppun og varanlegum aðgangshindrunum. Þessi verndarsýn er mótuð í nánu samspili við evrópskan samkeppnisrétt á grundvelli EESsamningsins. Bannákvæði íslenskra samkeppnislaga um ólögmætt samráð og misnotkun markaðsráðandi stöðu endurspegla þannig áhrifamiðaða nálgun 53. og 54. gr. EES-samningsins, þar sem megináhersla er lögð á raunveruleg áhrif á markaðsferli fremur en formlega flokkun háttsemi. Í því felst að samkeppnishömlur geta myndast jafnvel án sýnilegs samnings eða beinnar misnotkunar, ef markaðsaðstæður skapa hvata til samræmdrar eða útilokandi hegðunar. Í íslensku hagkerfi, þar sem markaðir eru víða smáir og samþjappaðir, verða þessar meginreglur sérstaklega raunhæfar. Samkeppniseftirlitið hefur í markaðsgreiningum sínum sýnt fram á að fá stór fyrirtæki ráða yfir meginhluta framboðs á lykilmörkuðum og að aðgangshindranir séu bæði fjárhagslegar og regluverkslegar. Slíkt markaðsform umbreytir hvötum fyrirtækja. Þótt skammtímahvati standi til verðsamkeppni leiðir hún í endurteknum samskiptum fákeppni til gagnkvæmra viðbragða sem rýra arðsemi allra aðila. Skynsamleg langtímastefna verður því að viðhalda stöðugleika fremur en að keppa af hörku. Leikjafræðileggreining skýrir þannig hvernig markaðurinn sjálfur getur framleitt samkeppnishamlandi jafnvægi án nokkurrar formlegrar samhæfingar. Sú niðurstaða birtist ekki einungis í fræðilegum líkönum heldur endurspeglast í íslenskum markaðsaðstæðum og samtímalegri umræðu. Umræða um álagningu á eldsneytismarkaði í kjölfar breytinga á opinberum gjöldum leiðir skýrt í ljós að við fákeppnisaðstæður getur virkni markaðarins raskast, jafnvel án þess að ólögmæt háttsemi komi til. Þegar fáir markaðsaðilar starfa á gagnsæjum markaði þar sem aðgangur nýrra keppinauta er verulega takmarkaður, geta hvatar til stöðugleika í álagningu orðið ríkari en hvatar til raunverulegrar verðsamkeppni, með þeim afleiðingum að ávinningur af skattabreytingum skilar sér ekki að fullu til neytenda. Þetta dregur fram að grundvöllur neytendafrelsis, réttaröryggis fyrirtækja og heilbrigðs markaðsbúskapar felst hvorki í markaðsstýringu né íhlutun í einstakar verðákvarðanir, heldur í því að samkeppnisumhverfið sé þannig úr garði gert að markaðurinn knýi fram hagkvæmar niðurstöður af eigin krafti. Hlutverk samkeppnisréttar er því ekki að koma í stað markaðarins, heldur að tryggja að hann starfi með eðlilegum hætti. Í úrskurðiáfrýjunarnefndar samkeppnismála í máli nr. 5/2025 var meðal annars fjallað um kvörtun þar sem þrír stærstu viðskiptabankar landsins voru sagðir hafa bæði samstillt hegðun og misnotað meinta sameiginlega markaðsráðandi stöðu með samhliða uppsögnum viðskiptasambanda. Þótt málið snerist að verulegu leyti að rannsóknarskyldu og forgangsröðun Samkeppniseftirlitsins var þar sérstaklega dregið fram að í samþjöppuðum mörkuðum geti sameiginleg hegðun fáeinna lykilaðila haft marktæk áhrif á samkeppni, jafnvel án formlegs samráðs. Kvörtunin byggði einmitt á þeirri forsendu að markaðsbyggingin sjálf skapaði hvata til samræmdra aðgerða sem útilokuðu fyrirtæki frá nauðsynlegri þjónustu. Svipuð kerfislæg hugsun kemur fram í máli Fura ehf. gegn Samkeppniseftirlitinu, nr. 6/2025, þar sem fjallað var um meinta misnotkun markaðsráðandi stöðu Landsnets og HS Veitna við uppsögn raforkusamninga. Í málinu var rakið að fyrirtækin störfuðu á grundvelli lögbundinnar stöðu og tengiskyldu og að aðgangur að raforkukerfum væri forsenda þess að áfrýjandi gæti starfað á sínum markaði. Málið undirstrikar hvernig aðgangshindranir og yfirburðastaða í innviðamörkuðum geta skapað kerfislæg samkeppnishamlandi áhrif, þar sem útilokandi áhrif ráðstafana eru fyrirsjáanleg og jafnvel varanleg, án þess að þörf sé á samráði í hefðbundnum skilningi. Þessi nálgun endurspeglast í málum um ætlað verðsamráð á veitingamarkaði á árinu 2025, þar sem Samkeppniseftirlitið lagði áherslu á að samþjöppuð markaðsskipan og skipulögð samskipti fyrirtækja innan samtaka gætu skapað raunhæfa hættu á samkeppnishamlandi áhrifum. Matinu var þar ekki einungis beint að tilteknum athöfnum heldur að því hvort markaðsgerð og samskiptamynstur sköpuðu fyrirsjáanlega hvata til samhæfðrar hegðunar sem gæti grafið undan virkri samkeppni, sem réttlætti beitingu víðtækra rannsóknarheimilda og íhlutun jafnvel á frumstigi málsmeðferðar, án þess að endanleg niðurstaða um brot lægi fyrir, sbr. úrskurði Áfrýjunarnefndar samkeppnismála í málum nr. 1/2025 (Samtök fyrirtækja í veitingarekstri gegn Samkeppniseftirlitinu) og nr. 2/2025 (dagsektir og synjun á afhendingu gagna í tengslum við sömu rannsókn). Í heild sinni endurspegla þessir úrskurðir þá þróun að íslenskur samkeppnisréttur, í samræmi við EES-rétt, hefur horfið frá þröngri brotamiðaðri nálgun og byggir í auknum mæli á áhrifamiðuðu mati á markaðsbyggingu og raunverulegum samkeppnisáhrifum. Þannig er markaðsráðandi staða ekki lengur skilin sem formleg einokun, heldur sem raunverulegur áhrifamáttur sem getur skapast með samþjöppun, aðgangshindrunum og samverkandi hvötum fyrirtækja. Á sama tíma verður að gæta þess að áhrifamiðuð beiting samkeppnislaga þróist ekki í almenna markaðsstýringu. Réttarframkvæmd undirstrikar að fyrirtækjum er heimilt að fylgjast með hegðun keppinauta og aðlaga sig að markaðsaðstæðum, enda er slík hegðun hluti virkrar samkeppni. Íhlutun samkeppnisréttar hefst fyrst þegar samskipti eða háttsemi draga úr óvissu keppinauta með þeim hætti að sjálfstæð ákvarðanataka víkur fyrir samhæfingu. Þessi mörk eru sérstaklega mikilvæg í fákeppnishagkerfum, þar sem annars er hætta á að eðlileg markaðshegðun verði túlkuð sem samkeppnishindrun. Áhrifamiðuð nálgun krefst því ekki aðeins virkni heldur einnig varfærni, skýrra viðmiða og stöðugs tillits til réttaröryggis. Á fákeppnismörkuðum, þar sem mikið gagnsæi ríkir og aðgangur nýrra keppinauta er takmarkaður, skerðist samkeppni ekki einungis vegna ólögmæts samráðs heldur einnig vegna þess að stöðugleiki í verði og markaðshegðun reynist fyrirtækjum hagkvæmari en virk samkeppni. Slíkt jafnvægi er fyrirsjáanlegt, viðheldur sér sjálft og reynist oft torvelt að raska nema gripið sé til skipulagslegra úrræða. Af framangreindu verður ráðið að helstu samkeppnisvandamál á Íslandi eigi að verulegu leyti rætur að rekja til kerfislægra hindrana. Fákeppni, samþjöppun og aðgangshindranir mynda í sameiningu markaðsumhverfi sem leiðir til samkeppnishamlandi hegðunar án þess að formleg brot þurfi að liggja fyrir. Með hliðsjón af þessu verður áhrifamiðuð og fyrirbyggjandi beiting samkeppnisréttar ekki einungis heimil heldur nauðsynleg til að ná fram markmiðum samkeppnislaga og fullnægja þeim skuldbindingum sem leiða af EES-réttinum. Höfundur er lögfræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Samkeppnismál Mest lesið Áskrift í sund á verði Netflix Kristinn Jón Ólafsson Skoðun Viska stéttarfélag: Sameinuð og skynsöm rödd til framtíðar Sigrún Einarsdóttir Skoðun Vill meirihlutinn í Reykjavíkurborg ekki hlusta á íbúa? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Ælt við dæluna Þorsteinn Sæmundsson Skoðun Andstaðan við að tryggja að neytendur fái lækkun við dælu Þórður Snær Júlíusson Skoðun Íbúasamráð í sveitarfélögum Sigurborg Kr. Hannesdóttir Skoðun Sólveig Anna um stöðu verkafólks innan eða utan ESB Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Kominn tími á samfélagssáttmála um leikskóla eins og á hinum Norðurlöndunum Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Fyrir enn betri Akureyrarbæ Berglind Ósk Guðmundsdóttir Skoðun Ísland í klóm myglunnar – Kerfisbundið lögleysi og stjórnsýslulegt gáleysi Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Vill meirihlutinn í Reykjavíkurborg ekki hlusta á íbúa? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Íbúasamráð í sveitarfélögum Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Raunverulegt val fyrir foreldra í Hafnarfirði Signý Jóna Tryggvadóttir skrifar Skoðun Þröngt mega sáttir? Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Ungt fólk, sjávarútvegur og framtíð íslensks efnahagslífs Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kominn tími á samfélagssáttmála um leikskóla eins og á hinum Norðurlöndunum Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Ælt við dæluna Þorsteinn Sæmundsson skrifar Skoðun Sólveig Anna um stöðu verkafólks innan eða utan ESB Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þurfum við ný lyf? Ragnhildur Reynisdóttir skrifar Skoðun Treður hið opinbera sér í hleðslugatið? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Það þarf kjark til að byggja bæ til framtíðar - Kópavogur er í sókn Leifur Andri Leifsson skrifar Skoðun Viska stéttarfélag: Sameinuð og skynsöm rödd til framtíðar Sigrún Einarsdóttir skrifar Skoðun Fyrir enn betri Akureyrarbæ Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Áskrift í sund á verði Netflix Kristinn Jón Ólafsson skrifar Skoðun Kvíðakast einstæðingsins Sólveig Skaftadóttir skrifar Skoðun Hvað ætlar Akureyri að verða þegar hún verður stór? Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Fjarðarheiðargöng og lenging flugbrautar á Egilsstöðum eru þjóðaröryggismál Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Andstaðan við að tryggja að neytendur fái lækkun við dælu Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hafnarfjörður í sókn með skýra sýn og hlýja forystu Alexander M Árnason skrifar Skoðun Þegar við lærum að þóknast – og gleymum sjálfum okkur Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ísland í klóm myglunnar – Kerfisbundið lögleysi og stjórnsýslulegt gáleysi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Náttúruverndin er munaðarlaus í Hafnarfirði Anna Sigríður Sigurðardóttir,Davíð Arnar Stefánsson skrifar Skoðun Íslenskt mállíkan – fullveldi eða útvistunarsamningur? Jón Guðnason,Hrafn Loftsson,Stefán Ólafsson,Kristinn R. Þórisson,Hannes Högni Vilhjálmsson,Henning Arnór Úlfarsson skrifar Skoðun Þegar öldrun birtist okkur eins og hún er Berglind Indriðadóttir skrifar Skoðun Klárum verkin fyrir börnin og íþróttafólkið okkar Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Hver borgar fyrir auknar strandveiðar? Björk Ingvarsdóttir,Mikael Rafn L. Steingrímsson skrifar Skoðun Ég skildi ekki Íslendinga fyrst Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Stöðu minnar vegna Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Enn eitt neyðarkall Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Dúllur okkar daga Hallgrímur Helgason skrifar Sjá meira
Kominn tími á samfélagssáttmála um leikskóla eins og á hinum Norðurlöndunum Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun
Ísland í klóm myglunnar – Kerfisbundið lögleysi og stjórnsýslulegt gáleysi Sigurður Sigurðsson Skoðun
Skoðun Kominn tími á samfélagssáttmála um leikskóla eins og á hinum Norðurlöndunum Jóhann Páll Jóhannsson skrifar
Skoðun Það þarf kjark til að byggja bæ til framtíðar - Kópavogur er í sókn Leifur Andri Leifsson skrifar
Skoðun Fjarðarheiðargöng og lenging flugbrautar á Egilsstöðum eru þjóðaröryggismál Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Ísland í klóm myglunnar – Kerfisbundið lögleysi og stjórnsýslulegt gáleysi Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Náttúruverndin er munaðarlaus í Hafnarfirði Anna Sigríður Sigurðardóttir,Davíð Arnar Stefánsson skrifar
Skoðun Íslenskt mállíkan – fullveldi eða útvistunarsamningur? Jón Guðnason,Hrafn Loftsson,Stefán Ólafsson,Kristinn R. Þórisson,Hannes Högni Vilhjálmsson,Henning Arnór Úlfarsson skrifar
Skoðun Hver borgar fyrir auknar strandveiðar? Björk Ingvarsdóttir,Mikael Rafn L. Steingrímsson skrifar
Kominn tími á samfélagssáttmála um leikskóla eins og á hinum Norðurlöndunum Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun
Ísland í klóm myglunnar – Kerfisbundið lögleysi og stjórnsýslulegt gáleysi Sigurður Sigurðsson Skoðun