Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Bjarki Sigurðsson skrifar 7. febrúar 2026 13:36 Njörður Sigurjónsson er prófessor við Háskólann á Bifröst. Vísindavefurinn Stjórnarmaður í Félagi akademískra starfsmanna við Bifröst segir vantrauststillögu gegn rektor skólans enn standa, þrátt fyrir að rektorinn segi niðurstöðu siðanefndar grundvöll sáttar í málinu. Hann er gagnrýninn á að siðanefnd hafi tekið málið fyrir en ekki vísað því frá.
Í gær hreinsaði siðanefnd Háskólans á Bifröst þrjá starfsmenn af öllum ásökunum um að hafa verið ranglega skráðir sem meðhöfundar að fræðigreinum. Í samtali við Ríkisútvarpið sagði Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor skólans, niðurstöðuna sigur fyrir alla og grundvöll að sátt í málinu. Veit ekki hvað fólki gekk til Þegar málið kom upp lýsti Félag akademískra starfsmanna við skólann yfir vantrausti á Margréti. Njörður Sigurjónsson, prófessor við háskólann og stjórnarmaður í félaginu, segist enn standa við vantraustið. „Í raun og veru hefur þetta mál aldrei snúist um niðurstöðu þessa ferlis hjá siðanefndinni, hver sem hún kynni að vera. Það var algjörlega ljóst fyrir okkur að það stæði ekki steinn yfir steini í þessari kæru og málsmeðferð. Eftir standa vinnubrögðin í kringum kærurnar og það hvernig yfirmenn okkar, okkar nánasta samstarfsfólk, fara í að kæra undirmenn sína til siðanefndar fyrir mjög langsóttar og óljósar sakir. Það er enn þá erfitt að átta sig á því hvað fólki gekk til,“ segir Njörður. Sorglegt mál Hann er gagnrýninn á að siðanefndin hafi tekið málið fyrir en ekki vísað því frá. „Þetta er fyrst og fremst sorglegt. Að þetta hafi farið í þetta ferli og bara undarlegt að siðanefndin skuli horfa á það sem sitt hlutverk að garfa í þessu máli og taka það áfram,“ segir Njörður. Ómögulegt ástand Niðurstaðan sé hjálpleg að því leytinu til að starfsmennirnir séu hreinsaðir af öllum ásökunum. „Þetta er algjörlega ómögulegt ástand fyrir okkur að vinna í. Við getum ekki unnið í umhverfi þar sem við megum eiga von á því að það sé hluti af gæðaferlum eða mannauðsmálum að fólk sé kært til siðanefndar skólans, það er algjörlega óheyrt,“ segir Njörður.
Deilur í Háskólanum á Bifröst Háskólar Vinnumarkaður Skóla- og menntamál Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Sjá meira