Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Samúel Karl Ólason skrifar 6. febrúar 2026 15:26 Njósnaklámiðnaðurinn í Kína virðist nokkuð umfangsmikill. Þar er hægt að fá aðgang að beinu streymi úr hótelherbergjum og myndböndum sem hafa verið klippt úr þeim streymum af fólki hafa mök, án þess að þau viti að verið sé að taka þau upp. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Getty Maður sem var árið 2023 að fletta í gegnum miðil þar sem hann nálgaðist reglulega klám, rambaði óvænt á myndband af sjálfum sér hafa mök við kærustu sína. Þau höfðu verið tekin upp á laun í hótelherbergi sem þau gistu í í Shenzhen í Kína nokkrum vikum áður. Slíkur iðnaður þykir nokkuð umfangsmikill í Kína, þó yfirvöld þar hafi sett reglur sem ætlað er að taka á vandanum.
Maðurinn ræddi mál sitt við BBC World Service en hann fékk dulnefnið Eric en hann er frá Hong Kong. Hann sagði frá því að myndbandið sýndi hann og kærustu hans ganga inn á hótelherbergið, leggja frá sér töskurnar og svo seinna meir hafa mök. Þau höfðu verið tekin upp á falda myndavél í herberginu og myndbandið sett á netið þar sem þúsundir höfðu aðgang að því. Eric hafði áður verið kaupandi kínversks njósnakláms en nú var hann orðinn fórnarlamb. Skikkuðu eigendur til að leita reglulega að myndavélum Þessi iðnaður hefur samkvæmt BBC verið stundaður í Kína í að minnsta kosti áratug, þrátt fyrir að framleiðsla og dreifing klámefnis sé bönnuð þar í landi. Meira ljósi hefur verið varpað á iðnaðinn á undanförnum árum og hafa konur í Kína notað samfélagsmiðla til að leiðbeina öðrum hvernig best sé að finna faldar myndavélar. Þá hafa einhverjar konur brugðið á það ráð að taka með sér tjöld og sofa í þeim á hótelum, til að komast hjá því að vera teknar upp. Í apríl í fyrra skikkuðu yfirvöld í Kína forsvarsmenn hótela þar í landi til að leita reglulega að földum myndavélum en það virðist ekki hafa borið árangur og er mikill fjöldi myndbanda birtur á netinu. Fæstir vita nokkurn tímann af því að þeir hafi verið teknir upp. Mörg þessara myndbanda eru birt á samfélagsmiðlinum Telegrem en blaðamaður BBC segist hafa fundið fjölmargar slíkar síður. Á einni er því haldið fram að viðkomandi séu með rúmlega 180 myndavélar faldar í hótelherbergjum og bjóða þeir jafnvel upp á beint streymi af gestum í þeim herbergjum. Í tilfelli Eric segist hann hafa byrjað að horfa á myndbönd sem þessi sem táningur. Það hafi heillað hann að fólkið viti ekki að verið sé að taka það upp, því hefðbundið klám virki of sviðsett. Þessi tilfinning segir Eric að sé alveg farin eftir að hann fann myndband af sér og kærustu sinni. Tíu þúsund notendur á einni síðu Blaðamaður BBC segist hafa gerst áskrifandi að þjónustu einnar áðurnefndrar síðu á Telegram fyrir um átta þúsund krónur á mánuði. Þá fékk hann aðgengi að fimm mismunandi myndavélum sem sendu myndefni beint út um leið og gestirnir kveiktu á rafmagni viðkomandi herbergja með því að setja lykil þeirra i þar til gerða rauf. Hægt var að spóla til baka í upptökunum og sækja myndbönd sem höfðu verið klippt úr streyminu. Ein síðan á Telegram hafði allt að tíu þúsund notendur og mátti finna þar þúsundir myndbanda sem náðu aftur til ársins 2017. Blaðamönnum BBC tókst að finna eitt herbergi með myndavél, í Zhengzhou Kína. Þar inni fundu þeir hana falda í loftræstikerfinu og var henni beint að rúminu í herberginu. Þegar hún var fjarlægð tóku notendur áðurnefndrar Telegramsíðu ekki vel í það og kvörtuðu sáran. Vonbrigði þeirra vörðu þó ekki lengi þar sem að opnað var á streymi frá nýrri myndavél nokkrum klukkustundum síðar.
Kína Klám Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Fleiri fréttir Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Sjá meira