Leicester missir sex stig og er í mikilli hættu á að falla annað árið í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. febrúar 2026 10:03 Nú reynir á stuðningsmenn Leicester City enda er útitið ekki bjart. Getty/Jon Hobley Enska B-deildarliðið Leicester City hefur misst sex stig vegna brota á fjármálareglum, refsingu sem félagið sjálft telur vera ósanngjarna.
Stigafrádrátturinn tekur gildi strax, sem þýðir að Refirnir falla úr sautjánda sæti í það tuttugasta í ensku B-deildinni og eru aðeins fyrir ofan fallsætið á markamun. Þetta gerist eftir að Leicester var kært af ensku úrvalsdeildinni í maí fyrir brot á reglum um hagnað og sjálfbærni (PSR) á þriggja ára tímabili fram til 2023-24. Leicester féll úr efstu deild á síðasta tímabili og er því í mikilli hættu á að falla annað árið í röð. BREAKING: Leicester City have been docked six points after being found to have breached the EFL's Profit and Sustainability rules for the 23/24 season. The points deduction leaves Leicester outside of the Championship relegation zone only on goal difference. pic.twitter.com/Vy8NPZLZoE— BBC Sport Leicester (@BBCRLSport) February 5, 2026 Englandsmeistararnir frá 2016 gætu því spilað í C-deildinni áratug síðar. Félagið er nú án fastráðins knattspyrnustjóra eftir að Marti Cifuentes var rekinn í janúar. Í yfirlýsingu sagði Leicester að félagið væri „vonsvikið“ með ákvörðunina og kallaði hana „ósanngjarna“. „Þrátt fyrir að niðurstöður nefndarinnar hafi dregið verulega úr fordæmalausri stærðargráðu þeirrar refsingar sem enska úrvalsdeildin fór upphaflega fram á eru tilmælin enn ósanngjörn og endurspegla ekki nægilega þær málsbætur sem lagðar voru fram en mikilvægi þeirra verður ekki ofmetið í ljósi hugsanlegra áhrifa á íþróttalegan metnað okkar á þessu tímabili,“ segir í yfirlýsingunni. „Við erum nú að fara yfir ákvörðunina í heild sinni og íhuga þá möguleika sem okkur standa til boða. Við erum áfram staðráðin í að eiga uppbyggileg samskipti og tryggja að allar aðgerðir séu sanngjarnar, í réttu hlutfalli og ákveðnar með viðeigandi ferlum.“ Samkvæmt PSR-reglum mega úrvalsdeildarfélög ekki tapa meira en 105 milljónum punda á þremur árum, en sú tala lækkar um 22 milljónir punda fyrir hvert tímabil sem félag spilar utan efstu deildar. Ársreikningur Leicester fyrir tímabilið sem lauk 30. júní 2024 sýndi 19,4 milljóna punda tap. Í ársreikningi sínum fyrir 2022-23 staðfesti Leicester 89,7 milljóna punda tap, en á 12 mánuðum fram til maí 2022 töpuðu þeir 92,5 milljónum punda, sem er mettap hjá félaginu. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=Jed8gjmZd18">watch on YouTube</a>
Enski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Sjá meira