Sakar Arsenal um virðingarleysi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. febrúar 2026 11:02 Liam Rosenior, knattspyrnustjóri Chelsea, var ekki bara ósáttur út í Arsenal heldur lét hann Joao Pedro einnig heyra það eftir leik. Getty/ Clive Mason Liam Rosenior, aðalþjálfari Chelsea, viðurkenndi að hann hefði misst stjórn á skapi sínu gagnvart leikmönnum Arsenal vegna þess sem hann telur vera virðingarleysi gagnvart liði sínu fyrir seinni undanúrslitaleikinn í Carabao-bikarnum á þriðjudag.
Myndavélar Sky Sports náðu myndum af þjálfara Chelsea í hörðum orðaskiptum við heimamenn á vellinum á Emirates Stadium fyrir leik, þar sem hann sakaði þá um að fara inn á vallarhelming Chelsea.Lið taka venjulega sinn helming vallarins til upphitunar og Rosenior sýndi á sér hlið sem hingað til hefur ekki sést á meðan hann hefur verið við stjórnvölinn, þegar hann kvartaði við skytturnar yfir því að brjóta „siðareglur“ fótboltans. "In that moment I didn't think it was right where they were operating" 🗣️Liam Rosenior explains his exchange with Arsenal staff on the touchline whist both sides were warming up 🔵 pic.twitter.com/cgsstW8H8b— Sky Sports News (@SkySportsNews) February 5, 2026 „Þegar þú hitar upp hefur þú þinn helming og hitt liðið sinn helming,“ sagði hann. „Á því augnabliki fannst mér ekki rétt hvar þeir voru að athafna sig. Þeir voru að trufla upphitun strákanna minna,“ sagði Liam Rosenior.„Svo ég bað þá, kannski ekki kurteislega, um að halda sig á sínum vallarhelmingi. Ég er ekki hér til að leika einhverja sálfræðileiki, þetta snýst bara um það sem mér finnst vera rétt og virðingarfyllst,“ sagði Rosenior.„Það eru ákveðnar siðareglur í fótbolta. Ég á ekkert sökótt við neinn hjá Arsenal. Það var bara á því augnabliki sem mér fannst liðinu mínu ekki sýnd virðing,“ sagði Rosenior.Chelsea tapaði leiknum 1-0 með marki sem fyrrverandi leikmaður þeirra, Kai Havertz, skoraði á sjöundu mínútu uppbótartíma og sendi Arsenal til Wembley með 4-2 samanlögðum sigri. Sky footage shows the Arsenal staff member who annoyed Liam Rosenior by venturing over the half-way line to “affect” Chelsea’s warm-up and ‘show disrespect’. #afc #cfc Watch here: https://t.co/2YTITxaWIA pic.twitter.com/Iu0L8uNhhS— Sam Blitz (@SamBIitz) February 5, 2026
Enski boltinn Arsenal FC Chelsea FC Mest lesið Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti KR - Njarðvík | Vinna KR-ingar þriðja leikinn í röð? Körfubolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Fleiri fréttir Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Sjá meira