Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Árni Sæberg skrifar 5. febrúar 2026 15:59 Konan lést í Vestmannaeyjum í síðustu viku. Vísir/Vilhelm Landsréttur hefur hafnað kröfum Lögreglunnar á Suðurlandi um að tvær konur, sem starfa á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum, yrðu hnepptar í gæsluvarðhald. Þær voru handteknar á mánudag í tengslum við rannsókn andláts konu á tíræðisaldri á hjúkrunarheimilinu.
Frá þessu greinir Lögreglan á Suðurlandi á Facebook. „Skýrslutökur og rannsóknaraðgerðir hafa farið fram undanfarna daga og niðurstaða Landsréttar í dag er á þá leið að meðal annars með tilliti til þess séu ekki lengur fyrir hendi rannsóknarhagsmunir sem styðja gæsluvarðhald.“ Samkvæmt heimildum fréttastofu var Landsréttur afdráttarlausari en svo að hafna gæsluvarðhaldskröfu yfir annarri konunni aðeins á grundvelli þess að rannsóknarhagsmunir væri ekki lengur fyrir hendi. Frumskilyrði gæsluvarðhalds um rökstuddan grun um að konan hefði framið refsivert brot hafi ekki heldur verið uppfyllt. Konan, sem var 97 ára gömul, lést á miðvikudag í síðustu viku en hún hafði þegið líknandi meðferð á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í aðdraganda andlátsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu grunaði fjölskyldu konunnar ekki að andlátið gæti hafa borið að með saknæmum hætti fyrr en lögreglan hafði skyndilega samband um helgina. Útför var áætluð síðar í vikunni en jarðneskar leifar konunnar voru fluttar upp á meginlandið í gær til krufningar. Rannsókn lögreglu hafi hafist eftir tilkynningu annars starfsmanns Hraunbúða. Fréttin hefur verið uppfærð.
Vestmannaeyjar Rannsókn á andláti í Hraunbúðum í Eyjum Lögreglumál Tengdar fréttir Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rannsókn Lögreglunnar á Suðurlandi á andláti á sjúkrastofnun í Vestmannaeyjum hófst um helgina en andlátið bar að í síðustu viku. Ríkissaksóknari fól embættinu að sinna rannsókninni þrátt fyrir að hún ætti að heyra undir Lögregluna í Vestmannaeyjum. 3. febrúar 2026 09:41 Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Jón Gunnar Þórhallsson, yfirlögregluþjónn Lögreglunnar á Suðurlandi, segir enn skýrslutökur vegna andláts konu á tíræðisaldri á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Landsréttur hefur ekki úrskurðað um gæsluvarðhaldskröfu lögreglunnar en farið var fram á gæsluvarðhald tveggja starfsmanna en því hafnað í héraðsdómi. 4. febrúar 2026 11:39 Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Héraðsdómur Suðurlands hafnaði nú síðdegis kröfu lögreglunnar um gæsluvarðhald yfir tveimur starfsmönnum hjúkrunarheimilisins Hraunbúða í Vestamannaeyjum, sem hafa verið í haldi lögreglu frá því í gær í tengslum við andlát konu á tíræðisaldri. Samkvæmt heimildum fréttastofu hóf lögreglan rannsókn á andlátinu eftir tilkynningu frá öðrum starfsmanni hjúkrunarheimilisins í kjölfar lyfjagjafar. 3. febrúar 2026 18:32 Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira
Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rannsókn Lögreglunnar á Suðurlandi á andláti á sjúkrastofnun í Vestmannaeyjum hófst um helgina en andlátið bar að í síðustu viku. Ríkissaksóknari fól embættinu að sinna rannsókninni þrátt fyrir að hún ætti að heyra undir Lögregluna í Vestmannaeyjum. 3. febrúar 2026 09:41
Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Jón Gunnar Þórhallsson, yfirlögregluþjónn Lögreglunnar á Suðurlandi, segir enn skýrslutökur vegna andláts konu á tíræðisaldri á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Landsréttur hefur ekki úrskurðað um gæsluvarðhaldskröfu lögreglunnar en farið var fram á gæsluvarðhald tveggja starfsmanna en því hafnað í héraðsdómi. 4. febrúar 2026 11:39
Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Héraðsdómur Suðurlands hafnaði nú síðdegis kröfu lögreglunnar um gæsluvarðhald yfir tveimur starfsmönnum hjúkrunarheimilisins Hraunbúða í Vestamannaeyjum, sem hafa verið í haldi lögreglu frá því í gær í tengslum við andlát konu á tíræðisaldri. Samkvæmt heimildum fréttastofu hóf lögreglan rannsókn á andlátinu eftir tilkynningu frá öðrum starfsmanni hjúkrunarheimilisins í kjölfar lyfjagjafar. 3. febrúar 2026 18:32