Tíu tilkynnt um veikindi eftir að hafa borðað mat frá Vitatorgi Lovísa Arnardóttir skrifar 5. febrúar 2026 11:18 Starfsfólk borgarinnar fylgist náið með fólki en fólk er einnig hvatt til að láta vita af veikindum í 1700. Vísir/Ívar Fannar og Reykjavíkurborg Tilkynnt hefur verið um tíu einstaklinga sem borðuðu mat sem mögulega var sýktur af listeríu á þriðjudag í síðustu viku og hafa verið með væg einkenni frá meltingarvegi. Ekki er vitað hvort veikindin tengist listeríu. Engin staðfest veikindi hafa verið vegna listeríu. „
Starfsfólk í heimaþjónustu, á félagsmiðstöðvum og í þjónustuíbúðum er á vaktinni og hvetur fólk til að bregðast við finni það fyrir einkennum. Fólk er hvatt til að hafa samband við netspjall Heilsuveru, hringja í síma 1700 eða leita á heilsugæslu. Einkenni geta verið mild flensueinkenni, vöðvaverkir, hiti og stundum ógleði og niðurgangur,“ segir Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, í svari til fréttastofu. Framleiðslueldhúsinu á Vitatorgi var lokað á mánudag eftir að bakterían Listeria monocytogenes fannst þar við reglubundna sýnatöku í salati sem framreitt var á þriðjudag í síðustu viku. Á Vitatorgi eru framleiddar meira en 900 máltíðir á degi hverjum sem fara ýmist í heimsendingu eða eru bornar fram í félagsmiðstöðvum og þjónustuíbúðum velferðarsviðs. Félagsmiðstöðvarnar sækja aðallega aldraðir. Fram kom í viðtali við Rannveigu fyrr í vikunni að sýkingin hafi verið staðfest síðasta laugardag og svo ákveðið í kjölfarið, í samráði við heilbrigðiseftirlit, að loka eldhúsinu. Borgarráð samþykkti svo nýlega að fara í framkvæmdir í eldhúsinu og hefur þeim verið flýtt samhliða. Eldhúsinu verður því lokað þar til þeim er lokið. Á meðan ætlar Reykjavíkurborg að leita til einkaaðila til að elda mat fyrir fólk í heimaþjónustu og í félagsmiðstöðvum. „Það stendur yfir vinna við það að fá einkaaðila til að elda. Það er ekki hægt að segja frá því að svo stöddu hver mun framleiða matinn,“ segir Rannveig í svari.
Heilbrigðismál Eldri borgarar Heilbrigðiseftirlit Reykjavík Matvælaframleiðsla Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira