Blikkaði blaðamenn eftir að hann sagði að allt yrði í lagi hjá sér í Super Bowl Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. febrúar 2026 13:00 Drake Maye hélt á bikarnum fyrir sigurinn í Ameríkudeildinni í vinstri hendi af því að hann meiddi sig á kasthendinni í leiknum. Getty/Justin Edmonds Ein stærsta fréttin í kringum Super Bowl, leikinn um Ofurskálina, sem fram fer um næstu helgi, tengist leikstjórnanda New England Patriots.
Drake Maye, leikstjórnandi Patriots, meiddist á hægri kastöxlinni í úrslitaleik AFC-deildarinnar en hann sagðist hafa kastað sínum venjulega fjölda kasta á æfingu á mánudag og að batinn hefði tekið stakkaskiptum í aðdraganda Super Bowl LX gegn Seattle Seahawks. „Mér líður vel. Það verður allt í lagi með mig,“ sagði Maye en blikkaði svo blaðamenn. News story: With a confident wink, and rotating his right throwing shoulder for effect, Drake Maye says he took his normal throwing reps in practice Monday."I'm feeling good. I'll be just fine," he says, citing Sunday as a turning point in his recovery.https://t.co/lDC2L5CoDM— Mike Reiss (@MikeReiss) February 3, 2026 Maye tók takmarkaðan þátt í æfingu á fimmtudag og æfði svo ekki á föstudag vegna veikinda. Þegar hann talaði á opnunarhátíðinni í San Jose ráðstefnumiðstöðinni nefndi hann sunnudaginn sem vendipunkt, mögulega styrktan af fimmtán stiga hitanum í Kaliforníu sem tók á móti Patriots við komuna. Það hefur verið afar kalt síðustu daga á Austurrströndinn. „Ég held að það hafi orðið vendipunktur þegar ég lenti – mér leið vel eftir flugið – og að kasta þarna úti í dag. Ég efaðist aldrei um að verða hundrað prósent klár fyrir leikinn. Þetta er Super Bowl, maður fær tvær vikur til að undirbúa sig. Maður gerir allt sem maður þarf til að ná sér góðum og ég er fullur sjálfstrausts og líður vel,“ sagði Maye og hreyfði hægri öxlina í hringi til að leggja áherslu á mál sitt. Patriots héldu um níutíu mínútna æfingu í Stanford-háskóla á mánudag og Maye sagði að hann hefði kastað „talsvert mikið“. Hann sagðist hlakka til „venjulegrar undirbúningsviku“ á æfingum á miðvikudag, fimmtudag og föstudag. I asked Drake Maye how he was feeling after missing practice on Friday with an illness:“I’m feeling great. Yeah, feel good. Was out there today, got an extra day of work in of practice…And then from there, looking forward to getting back out there the next couple days.”@WEEI… pic.twitter.com/xF08givMXz— Tom Carroll (@yaboiTCfresh) February 3, 2026 Maye þakkaði sjúkraþjálfarateymi Patriots, undir forystu Jim Whalen, fyrir aðstoðina við batann. Hann bætti við að hann væri búinn að ná sér af veikindunum sem héldu honum frá æfingu á föstudag og sagðist hafa mætt seinna til að horfa á æfinguna þann dag eftir að fréttamenn voru farnir. „Það er kalt þarna úti, það gekk einhver pest í búningsklefanum, en mér líður virkilega vel,“ sagði Maye sem er að fara að taka þátt í sinum fyrsta Super Bowl. Super Bowl verður í beinni útsendingu á Sýn Sport á sunnudaginn kemur. Lokasóknin er auk þess á dagskránni í kvöld þar sem hitað verður vel upp fyrir leikinn. Útsendingin á sunnudaginn hefst líka vel í tíma fyrir leik til að hægt sé að fara vel yfir allt sem skiptir máli fyrir stærsta leik ársins í bandarískum íþróttum.
NFL Ofurskálin Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Hákon Arnar meiddist Fótbolti Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Fótbolti Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór Árni Ágúst grátlega nálægt því að bæta met Emin Kadri heldur áfram að vera ósigraður „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Sjá meira