Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Hólmfríður Gísladóttir skrifar 3. febrúar 2026 07:31 Aðstæður við Geographe-flóa breyttust fljótt þegar fjölskyldan var þar að leik undan ströndinni. Getty/Auscape/Universal Images Group Þrettán ára drengur hefur verið kallaður „ofurmenni“ eftir að hann synti fjóra kílómetra í úfnum sjó til að bjarga móður sinni og tveimur systkinum.
Fjölskyldan hafði verið að leika sér á brettum og upplásnum leikföngum í sjónum undan Geograph-flóa í suðurhluta Vestur-Ástralíu á föstudag, þegar sterkir vindar feyktu þeim frá ströndinni og út á haf. Táningurinn, sem var í kajak, hóf að róa aftur í átt að ströndinni til að gera viðvart en komst ekki áfram þar sem sjór gekk yfir fleyið. Hann fór því syndandi fjóra kílómetra, hálfa leiðina í björgunarvesti en restina án þess, þar sem hann fann hvernig vestið hægði á sér og hugsaði að hann myndi aldrei ná í land nema hann færi úr því. Það tók piltinn fjórar klukkstundir að ná ströndinni og láta vita og þyrlusveit um eina og hálfa klukkstund að finna móður hans, tólf ára bróður og átta ára systur. Þau voru þá komin um fjórtán kílómetra frá landi. Yfirvöld segja hugrekki drengsins hafa bjargað lífi fjölskyldunnar og þá skipti sköpum að öll voru í björgunarvestum. Þá sé atvikið áminning um það hversu fljótt aðstæður á sjó geta breyst. Fjölskyldan var flutt á sjúkrahús en hefur verið útskrifuð.
Ástralía Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira