Bensíni hellt á verðbólgubálið Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar 3. febrúar 2026 07:02 Hagstofan birti nýverið verðbólgutölur fyrir janúar sem ollu miklum vonbrigðum. Verðbólgan hækkaði um 0,38% á milli mánaða og mælist nú 5,2% á ársgrundvelli – það hæsta frá því í september 2024. En það voru ekki bara tölurnar sem ollu vonbrigðum, heldur einnig viðbrögð ríkisstjórnarinnar. Í stað þess að líta í eigin barm ákváðu leiðtogar landsins að gera olíufélög og bílaumboð að sökudólgum. Það má telja sérstakt í ljósi þess að hækkunina má rekja til aðgerða ríkisstjórnarinnar sjálfrar: hækkunar vörugjalda á bifreiðar og lækkunar rafbílastyrks. Skuldinni skellt á aðra Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, varpaði ábyrgð á olíufélögin: „Við sjáum það á tölunum að lækkun á eldsneytisverði er ekki að mæta að fullu þeirri lækkun sem við bjuggumst við miðað við okkar lækkanir. Þannig að ég set að hluta til ábyrgð á olíufélögin hvað það varðar. Þau þurfa að passa sig þegar kemur að verðlagningu. Ég veit að þau finna hitann af því og ég treysti því að þau geri þetta með sanngjörnum hætti,” sagði Kristrún. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráherra, tók í svipaðan streng: „Hækkunin sem er að verða núna á verðbólgu er vegna annarra þátta, þ.e.a.s. hækkunar á eldsneytisverðinu sjálfu og álagningu eldsneytis eða annarra slíkra þátta og álagningu á bifreiðar,“ sagði Daði. Eldsneytisverð rímar en vörugjöld vanmetin Þrátt fyrir þessar fullyrðingar þá rímar þróun eldsneytisverðs nákvæmlega við spá stjórnvalda sjálfra. Í áhrifamati sem fylgdi frumvarpi um kílómetragjald var gert ráð fyrir að nettóáhrif kílómetragjalds og niðurfellingar eldsneytisgjalda yrði á bilinu 0 til 0,10% til hækkunar á vísitölu. Raunin varð 0,05% hækkun. Því benda verðbólgutölur til þess að lækkun eldsneytisgjalda hafi skilað sér nákvæmlega eins og að var stefnt. Stjórnvöld virðast hins vegar hafa misreiknað áhrif hærri vörugjalda á ökutæki og skertra rafbílastyrkja hrapallega. Í minnisblaði frá fjármálaráðuneytinu kom fram að áætluð áhrif hærri vörugjalda yrðu um 0,10% til hækkunar á vísitölu. Raunin varð 0,56% hækkun. Sú hækkun er stærsti orsakaþáttur hærri verðbólgumælingar núna í janúar. Bensínbrúsinn Það er ódýrt að skella skuldinni á aðra þegar ríkisvaldið keyrir sjálft upp kostnað neytenda því að hækka neysluskatta með skömmum fyrirvara. Tillaga um hækkun vörugjalda var lögð inn til Alþingis milli umræðna um fjárlög og fékk því ekki sjálfstæða þinglega meðferð. Stjórnvöld áætla 7,5 ma. kr. í viðbótartekjur vegna hækkunarinnar, sem er svipuð upphæð og hækkun veiðigjalda á að skila. Valdhafar geta ekki verið hissa á því að varnaðarorð margra aðila hafi nú raungerst. Í viðbrögðum sínum væri nær að taka ábyrgð á erfiðri stöðu og ráðast að rót vandans á útgjaldahlið ríkissjóðs. Áður en stjórnvöld kenna öðrum um að kynda undir verðbólgubálið ættu þau að byrja á því að leggja frá sér bensínbrúsann. Höfundur er framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björn Brynjúlfur Björnsson Bensín og olía Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar