Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 31. janúar 2026 18:20 Í ljós kemur í kvöld hver þessara mun leiða lista Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ. Vísir/Samsett Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ kjósa sér oddvita í dag. Margrét Sanders sitjandi oddviti gefur ekki kost að sér áfram en valið stendur á milli þriggja.
Það eru þeir Ásgeir Elvar Garðarsson, Unnar Stefán Sigurðsson og Vilhjálmur Árnason. Sá síðastnefndi hefur setið á Alþingi fyrir flokkinn í rúman áratug en hyggst nú söðla um sig í sveitarstjórnarmálunum. Alls konar oddvitaefni Ásgeir Elvar Garðarsson er framkvæmdastjóri bílaleigunnar Geysis. Hann er menntaður viðskiptafræðingur og segist boða breytta nálgun á stjórnmálin í Reykjanesbæ. Unnar Stefán Sigurðsson er skólastjóri í Háaleitisskóla í Reykjanesbæ. Fyrir það var hann aðstoðarskólastjóri í Holtaskóla. Hann er menntaður smiður, rafvirki, lögreglumaður og er auk þess með BA-próf í guð- og miðaldafræði. Hann er einnig með meistaragráðu í mannauðsstjórnun sem hann lauk árið 2023. Vilhjálmur Árnason hefur sem fyrr segir setið á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn síðastliðin tólf ár. Síðustu fjögur ár hefur hann verið ritari flokksins. Hann hefur einnig starfað sem lögreglumaður Sjálfstæðisflokkurinn er í minnihluta í bæjarstjórn í Reykjanesbæ. Meirihlutann skipa Framsóknarflokkurinn, Samfylkingin og Bein leið. Klukkan sex höfðu 1644 manns tekið þátt í prófkjörinu sem jafngildir 46 prósenta kjörsókn. Kosið er í Réttinum á Hafnargötu og lýkur kosningu klukkan átta. Mosfellingar velja í einnig Sjálfstæðismenn í Mosfellsbæ eru sömuleiðis með prófkjör í dag. Þar eru þrettán í framboði en kosið er um átta efstu sætin. Hilmar Gunnarsson ritstjóri Mosfellings er sá eini sem sækist eftir oddvitasætinu. Klukkan þrjú síðdegis höfðu 606 greitt atkvæði sem jafngildir 28,5 prósenta kjörsókn. Kosið er í Kjarna og stóð prófkjörið til klukkan sex í dag.
Sjálfstæðisflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjanesbær Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira