Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Sif Sigmarsdóttir skrifar 29. janúar 2026 07:00 Sif Sigmarsdóttir er með vikulega pistla á Vísi. Vísir/Sara Rut Klukkan var að ganga ellefu. Eins og metnaðarfullum sjálfstætt starfandi blaðamanni er lagið sat ég enn á náttfötunum í sófanum heima hjá mér og horfði á það besta sem sjónvarpsútsendingar um hábjartan dag hafa upp á að bjóða.
Í myndveri bresks morgunsjónvarpsþáttar sat huggulegt par sem hugðist fræða áhorfendur um drykk sem þau drukku sér til heilsubótar á hverjum morgni. Hvorki var þó um að ræða spínat-smoothie né grænt te, heldur þvag. Þau sögðu siðinn aldagamlan og allra meina bót. Þvínæst skelltu þau í sig skoti af morgundjúsnum, heimabrugguðum keytukokteil, af sömu áfergju og Gwyneth Paltrow engiferskoti. Er lífsstílsbreyting þín eins og hlanddrykkja? Janúar er mánuður heilsubóta. Ólíklegt er að svo kölluð „þvag meðferð“, sem ég lýsti í upphafi og kynnt var svo eftirminnilega í bresku morgunsjónvarpi fyrir nokkrum árum, komist á lista yfir vinsæl heilsuráð árið 2026. Svo kann þó að vera að gagnsemi þeirra breytinga sem við gerum nú á lífsstílnum sé engu meiri en hlanddrykkju. Hann var orðinn meira en 200 kg að þyngd Árið 1702 fluttist George Cheney, skoskur læknir, til Lundúna. Nokkrum árum síðar skrifaði hann metsölubók um heilsufar, The English Malady. Bókinni má lýsa sem lífsstílsbloggi átjándu aldar. „Þegar ég flutti til London breyttist lífsstíll minn,“ skrifaði Cheney. „Heilsu minni stórhrakaði á örfáum árum ... Ég fitnaði mikið, ég var alltaf móður, orkulítill og hálfdofinn.“ Cheney var 200 kg að þyngd, þunglyndur og þakinn sárum þegar hann ákvað að snúa við blaðinu. Hann tók mataræði sitt í gegn og nærðist á engu öðru en mjólk og grænmeti. Hann deildi reynslu sinni með samtímamönnum sínum og kvað kúrinn allra meina bót; hann læknaði gigt, krabbamein og andlega kvilla. Fastandi miðaldra millistéttarfólk í spandex Einfaldar lífsstílsreglur, sem eiga að leiða til fullkominnar heilsu á sál og líkama, hafa fylgt okkur lengi. Einfaldar lífsstílsreglur hafa fylgt okkur lengi.Vísir/Getty En sama hversu margir kúrar koma og fara – Atkins, South Beach, dítox – virðumst við alltaf telja þann nýjasta sögulok. Sama hversu mörg hjálpartæki við kaupum og hendum – það var bumbubaninn, ThighMaster, sílíkonarmböndin – teljum við það nýjasta alltaf hinn heilaga kaleik. Miðaldra millistéttarfólk, sem fór í fyrra fastandi í hjólabúðina og fjárfesti í spandex og keppnisreiðhjóli sem kostaði jafnmikið og sæmilegur bíll, raðar nú í sig próteini og kaupir lyftingahanska og lóð í bílskúrinn. Í gær voru kolvetni óvinurinn, í dag eru það ofurunnin matvæli. Hvað það verður á morgun er erfitt að segja til um að öðru leyti en því að tilmælin munu að öllum líkindum hvíla á jafn ótraustum grunni og þau sem komu á undan. Gagnið í gagnsleysinu Samtíminn verður sí uppteknari af hreysti. Í stað þess að fara í partí förum við snemma að sofa til að mæta í ræktina á morgun. Í stað þess að fara í bíó verjum við kvöldinu í að elda máltíð úr svo óunnu hráefni, að ferlið tekur lengri tíma en að horfa á heila Martin Scorsese mynd. Ekkert þjónar tilgangi nema það leiði til mælanlegs árangurs; lægri blóðþrýstings, kólesteróls og kílóafjölda; meiri vöðvamassa, lungnaþols, betri einbeitingar og stöðuhækkunar. En í viðleitni okkar til að gera gagn yfirsést okkur gagnið í gagnsleysinu. Heilsubót letingjans Við fyrstu sýn virðist það hið mesta fánýti að slúðra og slæpast með vinum yfir kaffibolla. Að slúðra og slæpast með vinum yfir kaffibolla gæti bjargað lífi þínu.Vísir/Getty Í nýrri bók, „Why Brains Need Friends“, sýnir bandaríski taugavísindamaðurinn Ben Rein hins vegar fram á mikilvægi þess að verja tíma í slíkum félagsskap. Þótt það sé oft talin gagnslaus iðja að hitta vini, töf frá mikilvægari störfum á borð við vinnu og heimsókn í ræktina, minnkar hittingurinn líkurnar á hjartasjúkdómum, sykursýki, þunglyndi, kvíða og elliglöpum. Hann dregur að auki úr stressi, eykur sársaukaþol og minnkar líkurnar á ótímabæru andláti um helming. Önnur iðja letingjans fær uppreist æru í bókinni „Music as Medicine”, sem valin var bók ársins 2025 af dagblaðinu Financial Times. Í henni fjallar taugavísinda- og tónlistarmaðurinn Daniel Levitin um heilsufarsleg áhrif tónlistar og mögulegan lækningamátt hennar. Meira að segja gagnslausasti amlóðinn af þeim öllum, listmálarinn, gerir gagn þegar betur er að gáð. Í bókinni „Art Cure“, sem kom út fyrr í mánuðinum, útlistar breski líffræðingurinn Daisy Fancourt þá heilsubót sem hlýst af því að virða fyrir sér listaverk. Hugsaðu þig tvisvar um „No pain, no gain“ – enginn sársauki, enginn ávinningur – eru einkunnarorð sjálfsbetrunarhreyfingarinnar sem tröllríður samtímanum. En það krefst ekki endilega sjálfshýðingar að öðlast endurlausn. Næst þegar þú afþakkar boð í partí því þú hyggst verja kvöldinu í að búa til hráborgara úr linsubaunum og brokkolí í matinn ættir þú að hugsa þig tvisvar um.
Samhengið með Sif Heilsa Heilbrigðismál Líkamsræktarstöðvar Mest lesið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Megas er látinn Lífið Harry Styles setti heimsmet Lífið Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Guðrún Sóley gengin út Lífið Það allra besta að gráta í gufu Lífið Listabarn á leiðinni Lífið Geirvörtur og latex vekja athygli í París Tíska og hönnun Fleiri fréttir Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Sjá meira