Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Hólmfríður Gísladóttir skrifar 28. janúar 2026 07:14 Myndin af Liam vakti athygli og óhug út um allan heim. Columbia Heights Public Schools Innflytjendayfirvöld í Bandaríkjunum mega ekki senda Liam Conejo Ramos og föður hans, Adrian Conejo Arias, úr landi á meðan mál þeirra er til umfjöllunar hjá dómstólum. Liam, 5 ára, rataði í heimsfréttirnar í síðustu viku, þegar skólayfirvöld í Minneapolis deildu mynd af honum þar sem hann hafði verið tekinn af yfirvöldum í aðgerð gegn föður hans.
Það var dómarinn Fred Biery í Texas sem ákvað að banna yfirvöldum að flytja feðgana úr landi. Biery var skipaður í embætti af Bill Clinton, þáverandi Bandaríkjaforseta. Liam og faðir hans voru fluttir til Texas eftir að þeir voru hnepptir í varðhald í Minnesota. Ágreiningur er enn uppi um það hvað atvikaðist á vettvangi en yfirvöld hafa haldið því fram að myndin af Liam, sem fór eins og eldur í sinu á netinu og vakti mikla reiði, hafi verið tekin eftir að fulltrúar innflytjendayfirvalda tóku drenginn undir sinn væng eftir að faðir hans hljóp á brott. Þá segja þau móður hans ekki hafa neitt viljað með hann að gera. Þau héldu því einnig fram fyrir dómi að Adrian, sem er frá Ekvador, hefði komið ólöglega inn í landið. Lögmaður hans segir hins vegar að feðgarnir hafi gefið sig fram á landamærastöð í Brownsville í Texas og farið að öllum reglum sem hælisleitendum ber að fylgja. Þá eru lýsingar skólayfirvalda af atburðum á skjön við fullyrðingar yfirvalda, þar sem þau segja fulltrúa á vettvangi hafa notað drenginn sem „beitu“ með því að láta hann banka upp á heima hjá sér. Skólayfirvöld og þingmenn í Minnesota voru ómyrk í máli á blaðamannafundi í St. Paul í gær, þar sem þau lýstu þeim áhrifum sem aðgerðir yfirvalda hefðu haft á nemendur. Að minnsta kosti fjórir nemendur hafa verið handteknir í Columbia Heigths, þar sem Liam og faðir hans búa, þar af tveir á leiðinni í skólann. „Börnin spyrja: Geta þeir tekið okkur? Og við vitum ekki hvernig við eigum að svara þeim,“ sagði Peg Nelson, kennari í Columbia Heights.
Bandaríkin Innflytjendarassíur ICE í Bandaríkjunum Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira