Vill Wille burt Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. janúar 2026 12:30 Noregur hefur ekki unnið til verðlauna á stórmóti undir stjórn Jonasar Wille. getty/Sina Schuldt Þriðji markahæsti leikmaður í sögu norska handboltalandsliðsins vill losna við þjálfara þess. Norðmenn eiga ekki lengur möguleika á að komast í undanúrslit á Evrópumótinu.
Noregur gerði 35-35 jafntefli við Portúgal í næstsíðasta leik sínum í milliriðli I á EM í gær. Norðmenn eru með þrjú stig í 4. sæti milliriðilsins og geta í besta falli náð 3. sæti hans og þar með leikið um 5. sætið á EM. Håvard Tvedten, sem skoraði 809 mörk í 208 landsleikjum á árunum 2000-14, segir að fullreynt sé með Jonas Wille sem þjálfara norska liðsins. Hann tók við því af Christian Berge 2022. „Þetta eru auðvitað vonbrigði. Að þeir séu enn og aftur ekki að berjast um verðlaun eins og þeir gerðu fyrir nokkrum árum,“ sagði Tvedten á NRK í gær. „Ég held því miður að þetta sé ekki nógu gott til að halda áfram með Wille. Ég held að það sé kominn tími á breytingar og ég held líka að þeir muni ráðast í þær,“ bætti Tvedten við. Håvard Tvedten lék í vinstra horninu og var afar markheppinn.getty/sampics Wille er á sínu fimmta stórmóti með norska liðið. Það endaði í 6. sæti á HM 2023 og 10. sæti á HM í fyrra. Á EM 2024 lenti Noregur í 9. sæti og í 6. sæti á Ólympíuleikunum sama ár. „Ég held að það þurfi nýjar hugmyndir. Wille hefur átt fjögur góð ár með mörgum góðum augnablikum en við höfum aldrei barist um verðlaun,“ sagði Tvedten. Undir stjórn Berges unnu Norðmenn til silfurverðlauna á HM 2017 og 2019 og bronsverðlauna á EM 2020. Noregur mætir Danmörku í lokaleik sínum í milliriðli I annað kvöld.
EM karla í handbolta 2026 Norski handboltinn Tengdar fréttir Hleraði leikhlé Norðmanna Leikmaður portúgalska handboltalandsliðsins hlustaði á leikhlé Noregs undir lok leiks liðanna í milliriðli I á Evrópumótinu. 26. janúar 2026 23:31 Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Fleiri fréttir Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Sjá meira
Hleraði leikhlé Norðmanna Leikmaður portúgalska handboltalandsliðsins hlustaði á leikhlé Noregs undir lok leiks liðanna í milliriðli I á Evrópumótinu. 26. janúar 2026 23:31