Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Lovísa Arnardóttir skrifar 27. janúar 2026 06:32 Fara þurfti í töluverðar framkvæmdir á húsnæðinu og því hefur opnun tafist. Stjórnarráðið Áætluð verklok á meðferðarheimilinu Lækjarbakka í Gunnarsholti á Rangárvöllum eru um næstu mánaðamót, janúar/febrúar, og er gert ráð fyrir að húsið verði afhent Barna- og fjölskyldustofu á þeim tíma. Stefnt er að því að taka á móti fyrsta skjólstæðingi í lok febrúar 2026. Pláss er fyrir sex drengi og kynsegin á meðferðarheimilinu.
Búið er að ráða allt starfsfólk og allir starfsmenn eru komnir til starfa. Þetta kemur fram í svari frá barna- og menntamálaráðuneytinu. Meðferðarheimilið var áður rekið að Geldingarvöllum í Rangárþingi en var lokað síðla árs 2024 vegna myglu. Við tók leit að nýju húsnæði og var tilkynnt í nóvember árið 2024 að búið væri að finna nýtt húsnæði. Samkvæmt svari verða á meðferðarheimilinu rými fyrir sex drengi eða kynsegin ungmenni í langtímameðferð sem að jafnaði á að standa yfir í sex til níu mánuði. Opnun heimilisins í Gunnarsholti mun styrkja meðferðarkerfi Barna- og fjölskyldustofu verulega. Umfangsmeira en áður var talið Samkvæmt svörum ráðuneytisins eru framkvæmdir við húsnæðið á lokametrunum. Unnið er alla virka daga og laugardaga og hafa verktakar á staðnum aukið við mannskap á lokasprettinum til að hraða framgangi verkefnisins. „Verkefnið hefur reynst umfangsmeira en gert var ráð fyrir í upphafi. Upphaflega var miðað við um fjögurra mánaða framkvæmdatíma, en nú liggur fyrir að framkvæmdir muni taka um sex mánuði, meðal annars þurfti að fjarlægja asbest úr húsinu og rífa og endurbyggja veggi,“ segir í svari ráðuneytisins. Geldingalækur á Rangárvöllum, þar sem starfsemi meðferðarheimilisins Lækjarbakka fór áður fram, hefur verið sett á sölu. Starfseminni var hætt í húsnæðinu eftir að mygla fannst þar. Búið að ráða í sautján stöðugildi Þá kemur fram að unnið hafi verið að undirbúningi starfseminnar og móttöku fyrstu skjólstæðinga síðustu vikur. Búið sé að ráða allt starfsfólk, samtals í sautján stöðugildi, og allir starfsmenn komnir til starfa. „Undanfarnar vikur hefur starfsfólk verið í þjálfun og fræðslu í Gunnarsholti í tímabundinni aðstöðu á svæðinu. Húsgögn eru að mestu komin á verkstað og til skoðunar er hvort unnt sé að afhenda Barna- og fjölskyldustofu hluta húsnæðisins í áföngum, þannig að starfsfólk geti hafið undirbúning starfseminnar í tilteknum rýmum áður en öllum framkvæmdum lýkur,“ segir að lokum. Úrræðaleysi á Íslandi Ekkert meðferðarheimili fyrir drengi til langtímameðferðar er rekið á landinu eins og er. Töluvert hefur verið fjallað um málaflokkinn síðustu misseri og sérstaklega eftir að þrjár mæður gripu til þess að fara með drengina sína til Suður-Afríku í meðferð vegna úrræðaleysis á Íslandi. Fjölskylda eins drengsins lenti í alvarlegu bílslysi í lok desember. Systir eins drengsins og amma hans létust í slysinu auk þess sem faðir hans slasaðist alvarlega. Þá hefur meðferð á Stuðlum verið skert í langan tíma vegna bruna árið 2024. Eitt barn lést í brunanum. Umboðsmaður barna sagði í nóvember í fyrra að hún teldi rétt að endurskoða starfsemi meðferðarheimila fyrir börn og ungmenni vegna alvarlegra mála sem hafa komið upp síðustu misseri. Mun meiri harka einkenni vímuefnaneyslu ungs fólks í dag en áður og mögulega þurfi að gera breytingar í takt við það.
Meðferðarheimili Börn og uppeldi Fíkn Barnavernd Suður-Afríka Rangárþing ytra Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Fleiri fréttir „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Sjá meira