Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sindri Sverrisson skrifar 26. janúar 2026 09:32 Matheus Cunha fagnar sigurmarkinu gegn Arsenal. Getty/Justin Setterfield Sigur Manchester United gegn Arsenal á Emirates-leikvanginum í gær, 3-2, var merkilegur fyrir margra hluta sakir.
Matheus Cunha tryggði United sigurinn á 87. mínútu með góðu skoti utan teigs en áður hafði Patrick Dorgu einnig skoraði stórglæsilegt mark með skoti utan teigs. Þetta er aðeins í annað sinn frá því að Arsenal hóf að spila á Emirates-vellinum, árið 2006, sem að liðið fær á sig tvö mörk með skotum utan teigs í deildarleik. Í fyrra skiptið gerðist það árið 2008, í 4-4 jafntefli við Tottenham. 2 - Arsenal have conceded 2+ goals from outside the box in a Premier League game for only the second time at the Emirates:v Spurs, October 2008 (4-4)v Man Utd, January 2026 (2-3)Surprised. pic.twitter.com/Ogdtegzfbv— OptaJoe (@OptaJoe) January 25, 2026 Hin óhemju trausta vörn Arsenal hafði auk þess leikið 121 leik í röð, í öllum keppnum, án þess að fá á sig meira en tvö mörk í sama leiknum. Það gerðist síðast þegar liðið vann Luton Town 4-3 þann 5. desember 2023. 121 - Arsenal conceded 3+ goals in a match for the first time since December 2023 (v Luton), ending a run of 121 matches across all competitions without conceding more than twice. Anomaly. pic.twitter.com/lkAXZMBJjr— OptaJoe (@OptaJoe) January 25, 2026 Þetta er í fyrsta sinn síðan í mars 2021, þá undir stjórn Ole Gunnar Solskjær, sem að United vinnur topplið deildarinnar á útivelli. Þetta er jafnframt í fyrsta sinn frá árinu 2018 sem að liðið nær að skora þrjú mörk á útivelli gegn toppliðinu. 3 - @ManUtd won away to the side top of the Premier League for the first time since March 2021 (2-0 v Man City under Solskjær), while it was the first time they had scored 3+ goals away to the league leaders since April 2018 v Man City (3-2) under José Mourinho. Super. pic.twitter.com/11oD7ev6rI— OptaJoe (@OptaJoe) January 25, 2026 Óhætt er að segja að byrjun Michael Carrick sem stjóri United hafi verið draumi líkust því United hefur nú unnið bæði Arsenal og Manchester City. Liðið er komið í 4. sæti en er þó tólf stigum frá toppnum þar sem Arsenal situr. Næsti leikur United er á sunnudaginn, gegn Fulham, en Arsenal spilar gegn Kairat í lokaumferð Meistaradeildarinnar á miðvikudag og sækir svo Leeds heim á laugardaginn.
Enski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Sjá meira