Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 24. janúar 2026 13:16 Guðmundur Heiðar segir gott ráð á tækniöld að líta á öll einkaskilaboð í kosningabaráttu sem opinber. Mýmörg dæmi séu um að einkaskilaboð séu gerð opinber. samsett Guðmundur Heiðar Helgason, almannatengill hjá vörumerkjastofunni Tvist, segir að frambjóðendur í kosningabaráttu þurfi að hugsa um einkaskilaboð til kjósenda sem opinber skilaboð nú á stafrænum tímum. Hann segir vandræðagang með skilaboð borgarstjóra um að mótframbjóðandinn sé „frægur karl með enga reynslu“ koma upp á versta tíma.
Í Pallborðinu á Vísi í gær voru skilaboðin borin undir Heiðu Björgu Hilmisdóttur borgarstjóra en þar sagðist hún ekki muna eftir skilaboðunum. Í gærkvöldi sendi hún síðan frá sér tilkynningu þar sem hún tók á ábyrgð á ummælunum og bað Pétur afsökunar. „Það mætti segja að það sé fyrst og fremst svolítið neyðarlegt það sem kom upp á í gær. Það þarf náttúrulega að gera ráð fyrir því í svona kosningabaráttu að allt skriflegt sem þú sendir út sé eins og opinber skilaboð og ekki endilega einkasamtal því maður hefur séð það áður að svona skilaboð fara síðan á flakk.“ Hughrifin þau að ekki sé verið að taka ábyrgð Þannig sé góð regla fyrir frambjóðendur í kosningabaráttu að hugsa fyrst áður en skeyti er sent hvort þeir gætu treyst sér til að standa opinberlega með því sem stendur í umræddu skeyti. Það vakti til dæmis mikla athygli í aðdraganda síðustu alþingiskosninga þegar formaður Samfylkingarinnar sagði Dag B. Eggertsson aukaleikara. Guðmundur segir skipta miklu máli hvernig tekið sé á vandræðamálum. „Það sem gerir þetta aðeins neyðarlegra er að segjast fyrst ekki muna eftir þessu og skömmu síðar gangast við því. Þá má vel vera að það sé hárrétt að þetta hafi verið svona hjá henni; að hún sé búin að senda fullt af skilaboðum og að hún hafi hreinlega ekki munað eftir þessum tilteknu skilaboðum fyrr en hún skoðaði málið. En það sem skiptir máli eru hughrifin. Fólk upplifir þennan vandræðagang og þá verða þessi hughrif sjálfkrafa að hún hafi fyrst reynt að komast hjá því að taka ábyrgð á skilaboðunum og þannig verður augnablikið svolítið skrítnara og vandræðalegra,“ útskýrir Guðmundur Heiðar. Úrslitin ráðast í kvöld Tímasetning skilaboðanna kemur á slæmum tíma fyrir Heiðu því það kemur í ljós um sjöleytið í kvöld hvort Pétur eða Heiða muni leiða Samfylkinguna í borgarstjórnarkosningunum í vor. „Þetta væri allt annað mál ef það væru tvær vikur í kosningar. Tímasetningin fyrir Heiðu er frekar óheppileg en ef við ættum að draga eitthvað jákvætt fram þá er það að hún hafi gengist fljótt við því að hafa sent þessi skilaboð og það er jákvætt að hún hafi beðið Pétur afsökunar á því og það gerir baráttuna aðeins drengilegri og það held ég að við séum öll sammála um að sé jákvætt.“ Pétur hafi afgreitt málið snyrtilega Pétur fékk líka ákveðið „próf“ í Pallborðinu í gær en undir hann voru borin skilaboð þar sem sjá mátti fólk hvetja aðra til að greiða atkvæði með tilteknum lista frambjóðenda í prófkjörinu þar sem Pétur var efstur. Hann neitaði fyrir að þetta væri með hans samþykki. „Mér fannst hann gera það vel. Það hefur margoft sýnt sig að í svona baráttu er alls konar fólk í kringum baráttuna sem er að reyna að gera sitt besta til að hjálpa en ganga aðeins of langt. En mér finnst hann gera vel með því að taka skýra afstöðu: „Nei, þetta kemur ekki beint frá mér“ og í rauninni afgreiða þetta snyrtilega.“ Flokksforvali Samfylkingarinnar lýkur klukkan 18 í kvöld en þá kemur Samfylkingarfólk saman í Iðnó þar sem úrslit flokksvalsins verða síðan kynnt en kjörstjórn stefnir á að úrslit verði kynnt um sjöleytið. Fulltrúar fréttastofu Sýnar verða að sjálfsögðu á staðnum og við verðum í beinni útsendingu frá Iðnó á Vísi í kvöld.
Samfylkingin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Tengdar fréttir Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Rétt tæp þrjátíu prósent flokksfélaga Samfylkingarinnar í Reykjavík, 2070 manns, höfðu um hálftólfleytið í dag greitt atkvæði í prófkjörinu vegna komandi borgarstjórnarkosninga. 24. janúar 2026 12:05 Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri og oddvitaefni Samfylkingarinnar í Reykjavík, gengst við því að hafa sent skilaboð á kjósanda þar sem hún sagði mótframbjóðanda sinn frægan karl með enga reynslu. Hún biður Pétur Marteinsson afsökunar en fyrr í dag sagðist hún ekki muna eftir því að hafa sent umrædda orðsendingu. 23. janúar 2026 22:36 Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Klukkan 13 mætast Heiða Björg Hilmisdóttir og Pétur Marteinsson, sem bæði sækjast eftir oddvitasæti Samfylkingarinnar í borginni, í Pallborðinu á Vísi. Þetta er í síðasta sinn sem oddvitaframbjóðendurnir mætast fyrir prófkjörið sem fer fram á morgun. 23. janúar 2026 11:31 Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Gríðarleg harka er að færast í prófkjörsbaráttuna í Samfylkingunni og kannski ekki seinna vænna. Þrjú þúsund manns hafa skráð sig í flokkinn en lokað var fyrir skráningar á miðnætti. Meint skilaboð frá Heiðu Björgu Hilmisdóttur borgarstjóra, þar sem hún fer fram á stuðning gegn frægum karli, eru í umferð. Heiða kannast ekki við að hafa sent slík skilaboð. 23. janúar 2026 13:00 Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Sjá meira
Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Rétt tæp þrjátíu prósent flokksfélaga Samfylkingarinnar í Reykjavík, 2070 manns, höfðu um hálftólfleytið í dag greitt atkvæði í prófkjörinu vegna komandi borgarstjórnarkosninga. 24. janúar 2026 12:05
Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri og oddvitaefni Samfylkingarinnar í Reykjavík, gengst við því að hafa sent skilaboð á kjósanda þar sem hún sagði mótframbjóðanda sinn frægan karl með enga reynslu. Hún biður Pétur Marteinsson afsökunar en fyrr í dag sagðist hún ekki muna eftir því að hafa sent umrædda orðsendingu. 23. janúar 2026 22:36
Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Klukkan 13 mætast Heiða Björg Hilmisdóttir og Pétur Marteinsson, sem bæði sækjast eftir oddvitasæti Samfylkingarinnar í borginni, í Pallborðinu á Vísi. Þetta er í síðasta sinn sem oddvitaframbjóðendurnir mætast fyrir prófkjörið sem fer fram á morgun. 23. janúar 2026 11:31
Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Gríðarleg harka er að færast í prófkjörsbaráttuna í Samfylkingunni og kannski ekki seinna vænna. Þrjú þúsund manns hafa skráð sig í flokkinn en lokað var fyrir skráningar á miðnætti. Meint skilaboð frá Heiðu Björgu Hilmisdóttur borgarstjóra, þar sem hún fer fram á stuðning gegn frægum karli, eru í umferð. Heiða kannast ekki við að hafa sent slík skilaboð. 23. janúar 2026 13:00