Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Samúel Karl Ólason skrifar 23. janúar 2026 13:02 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir segist hafa miklar áhyggjur „af því skelfilega ástandi sem ríkir í Íran og fordæmi harðlega dráp stjórnvalda á mótmælendum.“ Vísir/Vilhelm Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, ávarpar í dag mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna á sérstökum aukafundi. Hann er haldinn að frumkvæði Íslendinga og verður fjallað um alvarlega stöðu mannréttinda í Íran og mótmælin þar í landi undanfarnar vikur.
Eins og þekkt er stóðu umfangsmikil mótmæli gegn klerkastjórninni í Íran yfir fyrir og eftir áramót. Í fyrstu gerðu yfirvöld lítið til að reyna að stöðva mótmælin en það breyttist fljótt og var mótmælendum mætt af mikilli hörku. Talið er að þúsundir hafi látið lífið en erfiðlega hefur gengið að afla upplýsinga frá Íran þar sem stjórnvöld hafa takmarkað aðgang almennings að neti og símasambandi í landinu. Í tilkynningu frá Stjórnarráðinu um aukafundinn sem birt var á dögunum segir að Ísland hafi verið í forystu hvað varðar málefni Írans í mannréttindaráðinu síðustu ár. Frá árinu 2021 hefur Ísland leitt vinnu við ályktun sem tryggir endurnýjun umboðs sérstaks skýrslugjafa um stöðu mannréttinda í Íran. Í kjarnahópi ríkja um ályktunina sitja, auk Íslands, Þýskaland, Bretland, Moldóva og Norður-Makedónía. Fylgjast má með fundinum í beinni útsendingu hér að neðan og hér á vef Sameinuðu þjóðanna. Áætlað er að Þorgerður taki til máls um 13:45 til 14:00 að íslenskum tíma. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hótaði loftárásum gegn klerkastjórninni en dró í land þegar hann sagðist hafa fengið vilyrði fyrir því að klerkastjórnin ætlaði ekki að taka handtekna mótmælendur af lífi. Hann sendi þó flugmóðurskip á svæðið og hefur haldið möguleikanum á árásum opnum. Í dag bárust svo fregnir af því að æðsti saksóknari Íran hafi lýst því yfir að ummæli Trumps um að búið væri að hætta við aftökur átta hundruð mótmælenda væru röng.
Utanríkismál Íran Sameinuðu þjóðirnar Ísland í mannréttindaráði SÞ Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira