„Lagar lekann í smástund en þetta er ekki Liverpool-leiðin“ Sindri Sverrisson skrifar 22. janúar 2026 12:02 Arne Slot og hans menn voru kátir eftir 3-0 sigurinn í Frakklandi í gærkvöld. Getty/Stuart Franklin Þó að Liverpool hafi unnið góðan 3-0 útisigur gegn Marseille í gærkvöld eru sérfræðingarnir í Meistaradeildarmörkunum á Sýn Sport ekki hrifnir af þeirri miklu breytingu sem orðið hefur á leikstíl liðsins frá því að Jürgen Klopp var við stjórnvölinn.
Varfærnisleg nálgun Arne Slot var til umræðu í þættinum í gærkvöld og sýnt hvernig Liverpool leyfði Marseille að vera með boltann en þétti þess í stað raðirnar aftar á vellinum. Brot úr þættinum má sjá hér að neðan. Klippa: Umræða um Liverpool eftir sigurinn á Marseille „Því miður virðist þetta vera það sem Slot vill standa fyrir. Þetta er hans bolti og hann vill spila svona, stuðningsmönnum Liverpool til mikillar mæðu. Ég held að það séu fáir sem voru djúpir á Klopp-tímanum sem eru ánægðir og finnst þetta skemmtilegt,“ sagði Atli Viðar Björnsson. „Fjórir fremstu eru miklu lélegri í fyrstu pressu og þessari „endurpressu“ heldur en Liverpool var þegar liðið var upp á sitt besta fyrir 2-3-4 árum. Þeirra einkenni hefur breyst,“ sagði Atli Viðar og Arnar Gunnlaugsson var hjartanlega sammála því. „Þeir voru ekki alveg svona í fyrra. Voru í „mid block“ en agressívari í að stíga upp. Þeir voru líka með leikmenn til þess, Luis Diaz þar fremstur í flokki. Slot byrjaði að bakka með liðið, eðlilega, því það var að fá allt of mörg mörk á sig. Voru lélegir í varnarleik. Það fyrsta sem handbókin segir þér þá að gera er að þétta aðeins raðirnar og byrja að vinna út frá því. En stuðningsmenn og ég persónulega fíla mikið betur þetta DNA hjá Liverpool þegar menn fengu að stíga aðeins á bensíngjöfina og vera ekki svona rosalega passívir. Jú, þú kannski lagar lekann í smástund en þetta er ekki Liverpool-leiðin,“ sagði Arnar.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Enski boltinn Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira