Heimavinnan skilaði marki fyrir Szoboszlai Ágúst Orri Arnarson skrifar 22. janúar 2026 07:49 Dominik Szoboszlai skoraði skemmtilegt aukaspyrnumark í gærkvöldi. Vísir/Getty Dominik Szoboszlai renndi boltanum undir varnarvegg og skoraði mark beint úr aukaspyrnu fyrir Liverpool í 3-0 sigri gegn Marseille í Meistaradeildinni í gærkvöldi. Hann segir þetta ekki hafa verið neina skyndiákvörðun. „
Ég var búinn að vinna heimavinnu. Mér var sagt að ég ætti séns á að skjóta undir vegginn ef það væri enginn liggjandi þarna hjá þeim. Ég ákvað að prófa það og það virkaði“ sagði Szoboszlai við TNT Sports eftir leik. Þetta var annað aukaspyrnumarkið sem Szoboszlai skorar á tímabilinu og hann virðist vera orðinn aðalspyrnumaðurinn hjá Liverpool. „Við [Mohamed Salah] tölum alltaf saman áður en spyrnurnar eru teknar, hvernig okkur líður í leiknum og hvernig okkur líst á færið. Kannski þekkir annar okkar andstæðinginn betur. En jú hann spurði bara hvort ég vildi taka spyrnuna og ég sagði honum að ég ætlaði að skjóta undir vegginn. Honum leist vel á það“ sagði Szoboszlai um markið, sem má sjá hér fyrir neðan. Klippa: Marseille - Liverpool 0-3 Szoboszlai hrósaði Salah síðan mikið undir lok viðtalsins en Egyptinn var að snúa aftur frá Afríkumótinu og spilaði níutíu mínútur í leiknum gegn Marseille eftir að hafa aðeins náð einni æfingu með liðinu. „Ótrúlega gott að fá hann aftur. Hann hjálpar liðinu mikið, bæði innan og utan vallar. Og eins og þið vitið erum við mjög nánir. Það er frábært að spila með honum. Þó hann hafi ekki náð marki eða stoðsendingu í dag þá átti hann frábæran leik… Hann á markið bara inni í næsta leik“ sagði Szoboszlai um Salah, sem klúðraði dauðafæri í gær.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Liverpool FC Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Athletic Club - Real Sociedad | Heldur Orri áfram að skora á Spáni? „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira