Aldrei hlegið jafnmikið og við að horfa á Nablann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. janúar 2026 07:03 Andri Már Eggertsson, Nablinn og Tómas Steindórsson sýndu mikil tilþrif á fimleikagólfinu. Fimleikarnir í Extraleikunum ætla að vekja mikla athygli og nú er komið að gólfæfingum. Stefán Árni Pálsson frumsýndi tilþrif Andra Más Eggertssonar, Nablans og Tómasar Steindórssonar á gólfinu í nýjasta þættinum af Körfuboltakvöldi Extra. „
Við höfum verið að sýsla svolítið með bolta á Extraleikunum en við erum ekki að því núna. Við höldum áfram að vera án bolta því þið náttúrulega slóguð í gegn báðir í fimleikagrein eitt,“ sagði Stefán Árni Pálsson. „Ég er búinn að fá töluverð viðbrögð og rosalega margir voru sammála mér. Ég er búinn að fá baráttukveðjur,“ sagði Tómas enn ósáttur eftir tapið í fyrstu fimleikagreininni. Ein kveðjan kom frá fimleikadómara. Greinilega umdeildur sigur hjá Nablanum. „Ég þarf að segja þér eina sögu, Andri,“ sagði Stefán og spurði Nablann hver væri mesta goðsögn í íslenskum körfubolta hér innanlands frá upphafi,“ spurði Stefán ÁrniÞað stóð ekki á svarinu. „Teitur Örlygs,“ sagði Andri Már. Kallaði á alla fjölskylduna og öll grenjuðu úr hlátri „Teitur Örlygsson sagði mér að hann hafi aldrei hlegið jafn mikið og þegar þú hoppaðir á jafnvægissláni. Hann horfði, spólaði til baka, kallaði í alla fjölskylduna. Þau settust öll niður í sófann og grenjuðu úr hlátri,“ sagði Stefán. Það var hins vegar komið nóg af því að rifja upp fimleikaæfingu eitt því nú var komið að fimleikagrein númer tvö. „Við erum að fara í gólfæfingar og þetta er kannski svona mín uppáhaldsgrein hérna í fimleikum,“ sagði Stefán. Hef mikla trú á þér í þessari grein Það kom í ljós að Andri Már var í raun á heimavelli því hann hafði stundað leikfimi í grunnskóla í Gerpluhúsinu. „Tómas. Ég hef náttúrulega mikla trú á þér hér í þessari grein. Því að fínhreyfingarnar þínar eru að mínu viti betri,“ sagði Stefán. „Gaman að heyra og takk fyrir að segja þetta. Ef það er eitthvað sem ég ætti að vinna þá eru það æfingar á gólfinu. Það hefur svona verið mín sérgrein þegar ég er að horfa á fimleika í sjónvarpinu. Ég er nokkuð bjartsýnn,“ sagði Tómas. Ég er náttúrulega miklu léttari Andri Már var líka bjartsýnn. „Það segir sig sjálft að ég sé að fara að taka æfingar á gólfi. Ég er náttúrulega miklu léttari og fimari og einhvern veginn eru hreyfingarnar mínar svona eðlilegri fimleikafyrirhreyfingar,“ sagði Andri. En hvernig kom allt út? Það má komast að því með því að horfa á tilþrif kappanna í fjórtándu umferð Extraleikanna hér fyrir ofan.
Körfuboltakvöld Mest lesið Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti Spá því að ferðamennskan blómstri á eyjunum eftir HM Fótbolti Martínez hættur með portúgalska landsliðið Fótbolti Ancelotti áfram þrátt fyrir versta árangurinn í 60 ár Fótbolti Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Fótbolti FIFA segir Belga ekki hafa rétt til að áfrýja Fótbolti Fleiri fréttir Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Sjá meira