Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Árni Sæberg skrifar 19. janúar 2026 13:31 Héraðsdómur Reykjavíkur mun dæma í málinu. Vísir/Vilhelm Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps, með því að hafa stungið föður barnsmóður sinnar ítrekað eftir að hafa brotist inn til hans að næturlagi í október í fyrra.
Í ákæru á hendur manninum segir að hann hafi farið inn á heimili mannsins og inn í svefnherbergi hans, þar sem hann lá sofandi í rúmi sínu, og veist að honum og stungið hann endurtekið með hnífi í höfuð og líkama og eftir að hann vaknaði og náði að standa upp, haldið atlögunni áfram með hnífi og/eða kýlt með krepptum hnefum í búk hans. Afleiðingar þess hafi verið að maðurinn hlaut um eins sentimetra sár á utanverðri hægri kinn, sem saumað var með þremur sporum, bólgu á hægri kinn og fjögur sár á hægri öxl, sem saumuð voru alls með fimm sporum. Í ákærunni eru tengsl mannanna ekki tilgreind en í úrskurði Landsréttar um gæsluvarðhald yfir manninum, sem birtur var á föstudag en fjarlægður af vef réttarins skömmu síðar, kemur fram að árásarþoli sé faðir barnsmóður árásarmannsins. Með gervibyssu í buxnastrengnum Þá segir í ákærunni að maðurinn sæti ákæru fyrir vopnalagabrot, með því að hafa umrætt kvöld borið á almannafæri, án umbúða og falin innanklæða í aftanverðum buxnastreng, eftirlíkingu af skotvopni, en hann hafi vísað lögreglu á skotvopnið, í lögreglubifreið, eftir að hafa verið handtekinn. Í úrskurði Landsréttar sagði að maðurinn hefði fundist skammt frá heimili árásarþola og verið handtekinn. Þá hafi hann verði grímuklæddur og klæddur sokkum yfir skóm sínum, sem hafi vakið athygli lögreglumanna. Krefst upptöku á óskilgreindum vökva Ákæruvaldið krefst þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er þess krafist að hann sæti upptöku á hnífsskafti, hnífsblaði, tveimur stykkjum af Tamoxfeno Cinfa 20 milligramma töflum, einu stykki af oxyNorm 5 milligramma töflu, 20 millilítrum af óskilgreindum glærum vökva og eftirlíkingu af skotvopni. Loks segir í ákærunni að fyrir hönd brotaþola sé gert krafa upp á fimm milljónir króna í miskabætur.
Lögreglumál Dómsmál Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira