Myndir: Þúsundir mótmæltu á Grænlandi Samúel Karl Ólason skrifar 18. janúar 2026 09:02 Frá mótmælunum í Nuuk í gær. Rauða húsið í bakgrunni er ræðismannsskrifstofa Bandaríkjanna. AP/Evgeniy Maloletka Íbúar Nuuk létu rigningu ekki stöðva sig í gær og mótmæltu í þúsundatali. Mótmæli voru einnig haldin í smærri byggðum landsins stóra, þar sem fólk stóð saman gegn hótunum ráðamanna í Bandaríkjunum.
Grænlendingar veifuðu fána Grænlands og kölluðu að landið væri ekki til sölu. Þegar mótmælendur voru komnir að ræðismannsskrifstofu Bandaríkjanna í Nuuk í gær bárust þær fréttir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, ætlaði að beita átta ríki Evrópu tollum vegna andstöðu ráðamanna þar við yfirtöku Bandaríkjanna á Grænlandi. Sjá einnig: „Við látum ekki fjárkúga okkur“ Jens-Frederik Nielsen, formaður grænlensku landsstjórnarinnar, deildi í gærkvöldi meðfylgjandi myndbandi af mótmælunum í Nuuk. Mótmæli voru einnig haldin í Danmörku í gær. Mikill fjöldi fólks kom saman á Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn og sömuleiðis í Árósum, Óðinsvéum og Álaborg. Grænlendingar vilja ekki verða bandarískir Trump og bandamenn hans hafa á undanförnum árum ítrekað talað um að Bandaríkin ættu að eignast Grænland. Það sé gífurlega mikilvægt fyrir varnir Bandaríkjanna. Trump-liðar hafa einnig talað um að koma höndum yfir auðlindir sem finna má þar, eins og sjaldgæfa málma. Þá hafa Trump-liðar lýst yfir áhyggjum af umsvifum Rússa og Kínverja við og á Grænlandi og hafa gert mun meira úr þeim umsvifum en þau eru raunverulega. Langflestir Grænlendingar segjast ekki vilja tilheyra Bandaríkjunum. Þeir vilja helst geta orðið sjálfstæðir en ef valið standi milli Bandaríkjanna og Danmerkur, verði Danmörk fyrir valinu. Þúsundir mótmæltu í Nuuk.AP/Evgeniy Maloletka Mótmælendur voru á öllum aldri.AP/Evgeniy Maloletka Mótmælendur vildu gera Bandaríkjamönnum ljóst að Grænland væri ekki til sölu.AP/Evgeniy Maloletka Mótmælendur létu rigningu og kulda ekki stöðva sig.AP/Evgeniy Maloletka Margir mótmælendur voru skreyttir grænlenska fánanum.AP/Evgeniy Maloletka Jens-Frederik Nielsen, formaður grænlensku landsstjórnarinnar, á mótmælunum í Nuuk í gær.AP/Evgeniy Maloletka Þjóðsöngvar voru sungnir á mótmælunum.AP/Evgeniy Maloletka
Grænland Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Bandaríkin Donald Trump Danmörk Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Fleiri fréttir Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Sjá meira