Þúsundir baula á bandaríska sendiherrann Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 17. janúar 2026 13:58 Þúsundir eru saman komnar. AP Fjöldafundir til stuðnings Grænlandi fara nú fram víðs vegar um Danmörku. Mikill fjöldi fólks hefur komið saman á Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn og sömuleiðis í Árósum, Óðinsvéum og Álaborg.
Mótmælendur í þúsundatali marséruðu á Ráðhústorgið með grænlenska fána og slagorð á skiltum. Grænlendingar voru áberandi þar í litríkum þjóðbúningum sínum. Á Ráðhústorginu flutti Sisse Marie Welling, borgarstjóri Kaupmannahafnar, ræðu. „Make America Go Away“ Í kjölfarið fylktu mótmælendur liði að bandaríska sendiráðinu í Kaupmannahöfn á Austurbrú þar sem þeir sungu: „Grænland er ekki til sölu.“ Áberandi eru einnig rauðar derhúfur margra mótmælenda sem eru prýddar slagorðinu: „Make America Go Away.“ „Í dag sýnum við að við stöndum saman. Á Grænlandi, í samveldinu, á Norðurlöndum og í Evrópu. Við stöndum saman og víkjum ekki. Því að okkar samstaða er sterkari en græðgi þeirra,“ sagði einn skipuleggjenda mótmælanna í ræðustól fyrir utan bandaríska sendiráðið. Klippa: Þúsundir mótmæla í Kaupmannahöfn „Takið krumlurnar af Grænlandi! Eigum við ekki að reyna að öskra svo hátt að þeir heyri það alla leið í Hvíta húsið?“ spurði hann svo. Fjöldafundur verður einnig haldinn í Nuuk, höfuðborg Grænlands, og víða um Grænland seinna í dag. Það skipti máli „sálfræðilega“ að eignast landið Stephen Miller, einn nánasti ráðgjafi Donalds Trump Bandaríkjaforseta lét hafa það eftir sér í viðtali í gærkvöldi að Danmörk væri „pínulítið land með pínulítinn efnahag og pínulítinn her. Hann sagði Danmörku ekki geta varið Grænland og að Bandaríkjamenn þyrftu að hafa stjórn á norðurslóðum. Í nýlegu viðtali var Donald Trump sömuleiðis bent á þá staðreynd að Bandaríkjamenn hafi rúmar heimildir til að auka viðveru sína á Grænlandi. Hann var inntur eftir því hvers vegna það skipti þá yfirhöfuð máli að Bandaríkin þyrftu að eignast landið. „Af því að það finnst mér þurfa sálfræðilega til að ná árangri. Ég held að eignarhald gefi þér hluti sem leiga eða samningur gerir ekki. Eignarhald gefur þér hluti sem þú getur ekki fengið með því að skrifa eingöngu undir skjal,“ sagði hann þá.
Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Danmörk Grænland Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Fleiri fréttir Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Sjá meira