Svona heldur Rakel sér unglegri Stefán Árni Pálsson skrifar 16. janúar 2026 12:03 Vala Matt fór í gegnum matarræði Rakelar í íslandi í dag í gærkvöldi. Frumkvöðullinn og athafnakonan Rakel Halldórsdóttir er með þrjár háskólagráður og meðal annars gráður frá Harvard í Bandaríkjunum og einnig frá Milano á Ítalíu. Rakel vakti mikla athygli og aðdáun þegar hún stofnaði einn af fyrstu bændamörkuðunum í Reykjavík, markaðinn og heilsuverslunina Frú Laugu.
En Rakel passar vel upp á að borða helst lífrænan og hreinan mat og hreyfa sig á hverjum degi, til dæmis með því að fara í göngutúra á hverjum einasta degi og ganga alltaf upp stiga og helst tvær tröppur í einu. Og Rakel lítur út fyrir að vera tuttugu árum yngri en hún er vegna hollustu og lífsstíls. Og eiginmaður Rakelar, myndlistarmaðurinn Helgi Þorgils, nýtur góðs af og er varla orðinn gráhærður rúmlega sjötugur að aldri. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og heimsótti þessa flottu konu. Einn daginn eru egg óholl og næsta dag orðin holl „Við borðum engar jurtaolíur í rauninni nema ólífuolíu. Hún er bráðholl að mínu mati. Og við borðum hana bara alveg með öllum mat. Bara við hellum henni á allt ferskri og þegar ég steiki mat, sem ég geri ekkert oft af því að ég reyni að baka frekar mat. Það er hollasta aðferðin að mínu mati. Ég segi alltaf að mínu mati af því að það eru skiptar skoðanir og náttúrulega eru upplýsingar alltaf að breytast. Núna í um 54 ár hef ég sem sagt bara svo oft séð hlutina bara umveltast. Einn daginn eru egg það versta sem þú getur borðað og svo hérna næsta dag eru þau það besta sem þú getur borðað. Eins og í dag núna er fólk að tala um það að það sé bara frábær næring fyrir alla og hafi engin áhrif á kólesterólið sem var alltaf verið að tala um áður,“ segir Rakel og heldur áfram. „Ég stofnaði bændamarkaðinn með fyrrverandi manni mínum. Vegna þess að við vorum vön að hafa aðgengi að góðum mat beint frá bændum erlendis þar sem við bjuggum. Bæði í Boston og líka á Ítalíu. Við vorum bæði á Ítalíu fyrir og eftir Boston. Þannig að við vorum alveg í nokkur ár úti. Og þá fórum við á bændamarkaði og keyptum bara ferskt og gott beint frá bændum. Það reynum við að gera hér heima líka núna. Við reynum að kaupa bara íslenskar afurðir beint frá býli, merktar þannig. Grænmeti og bara kjöt og fisk og allt sem er íslenskt og gott. Því treysti ég vel, ég treysti bændunum og ég veit að þeir eru ekkert að setja nein eiturefni.“ Reyna að sleppa sykri Hún reynir eftir bestu getu að sneiða fram hjá ýmsum hráefnum. „Það er mikið af jurtaolíu í snakki. En þótt ég segi við borðum það ekki, þá meina ég ekki að við borðum það aldrei. Við erum ekki með neina svona harða stefnu. Bara allir fá það sem þeir vilja. Við borðum alveg, drekkum gos, við reynum að sleppa sykri. Ég nota frekar möndlusýróp eða döðlusýróp og hnetur og möndlur og eitthvað svona, þú veist, eitthvað sem er gott. Það er hægt að para með súkkulaði.“ Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.
Ísland í dag Matur Vala Matt Mest lesið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Megas er látinn Lífið Britney á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Fleiri fréttir Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Sjá meira