Fleiprað um finnska leið Rúnar Sigþórsson skrifar 15. janúar 2026 11:46 Nýr mennta- og barnamálaráðherra fór mikinn í Kastljósi RÚV í 13. janúar, meðal annars um finnsku leiðina í lestrarkennslu. Þrennt stendur upp úr því sem ráðherrann hélt fram um hana (það sem er í gæsalöppum er orðrétt): Að finnskir nemendur hefðu „skrapað botninn“ og skorað „hvað lélegast í PISA-könnunum“ í lesskilningi en frammistaða þeirra hefði verið rifin upp með verkefni sem væri fyrirmynd að íslenska verkefninu Kveikjum neistann. Að verkefnið Kveikjum neistann væri „liður í“ finnsku leiðinni í þróun menntakerfa. Að lestrarkennsla í finnskum skólum (samkvæmt finnsku leiðinni) byggðist „fyrst og síðast á markvissri hljóðaaðferð“. Mér þóttu þessar staðhæfingar allar í meira lagi grunsamlegar þannig að ég gerði það sem ráðherrann hefði betur gert áður en hún fór í viðtalið, aflaði mér eftirfarandi upplýsinga á fljótlegan og auðveldan hátt: Finnskir nemendur hafa aldrei skrapað botninn í lesskilningi á PISA-prófunum. Þvert á móti hafa þeir verið á toppnum allt frá því að þau voru tekin upp árið 2000. Árangurinn var nokkurn veginn óbreyttur frá 2000–2006 (546–547) stig en hefur síðan dalað og var kominn niður í 490 stig 2022 (heimild: Finland’s PISA Scores (Reading).https://worldscorecard.com/scorecards/finnish-scorecard/pisa-scores-reading).Um framangreint má einnig lesa í skýrslum OECD um niðurstöður prófanna 2006 og 2022. Hugtakið finnska leiðin er sótt til skrifa finnska menntunarfræðingsins Pasi Sahlberg en hann skrifaði þekkta bók sem hann kallaði Finnish Lessons: What Can the World Learn from Educational Change in Finland? Fyrsta útgáfa bókarinnar kom útárið 2011 og nýjar útgáfur 2014 og 2021. Sahlberg hefur einnig skrifað fjölda greina um finnskt skólakerfi og menntaumbætur. Til að auka mér leti lagði ég eftirfarandi beiðni fyrir gervigreindarforritið M365 Copilot: Kannaðu fyrir mig skrif Pasi Sahlberg um finnska skólakerfið og finndu hvað hann segir um aðferðir við lestrarkennslu. Svarið kemur hér á eftir nokkurn veginn orðrétt frá forritinu (málfar er þó snyrt á fáeinum stöðum). Tilvísanir forritsins í heimildir fylgja óbreyttar með í hornklofum: Eftir yfirferð á skrifum Sahlbergs og umfjöllun um Finnish Lessons (2011, 2014, 2021) og nýrra efni má draga eftirfarandi ályktun: 1. Sahlberg fjallar ekki beint eða tæmandi um ákveðna „lestrarkennsluaðferð“ en í þeim heimildum sem liggja fyrir ræðir Sahlberg um: jafnrétti í námi, fagmennsku og sjálfstæði kennara, heildræna sýn á skólastarf, leik og þroska barna, traust í stað prófamiðunar, hæfni kennara, gæði kennslu og kennaramenntun. Hann ræðir hins vegar ekki um aðferðir í lestrarkennslu eins og hljóðaaðferð, heildaraðferð eða blandaðar aðferðir. Engin af heimildunum um Finnish Lessons eða umfjöllun um verk Sahlbergs tilgreinir sérstaka lestrarkennsluaðferð sem hann mælir með eða lýsir. [link.springer.com] 2. Sahlberg bendir þó óbeint á meginviðmið sem hafa áhrif á lestrarkennslu og þótt hann lýsi ekki tiltekinni aðferð má lesa út frá skrifum hans að finnska kerfið byggi á ákveðnum grunnstoðum sem móta hvernig lestrarkennsla fer fram. Þær helstu eru: a) „Less is more“ – gæði umfram magn: Sahlberg útskýrir að finnskt skólastarf hvíli á einföldu og rólegu vinnuumhverfi þar sem kennarar hafa svigrúm til að nota þær aðferðir sem þeir telja henta hverjum nemenda. [link.springer.com] b) Faglegt sjálfstæði kennara: Kennarar velja sjálfir kennsluaðferðir – þar með talið við lestrarkennslu. Það er hluti af menningu trausts í finnska skólakerfinu. [link.springer.com] c) Mikið vægi leiks, sérstaklega í yngri bekkjum. Í nýrri erindum Sahlbergs er lögð mikil áhersla á leik sem grunn að þroska, þar með talið málþroska, sem er forsenda lestrarnáms. [blog.kindiedays.com] d) Jafnræði og snemmtækur stuðningur: Sérhæfður stuðningur er veittur þegar börn eiga í erfiðleikum – en án mikils prófastress. Þetta snertir einnig lestrarnám. [link.springer.com] 3. Sahlberg fjallar um læsi (e. literacy) en ekki sérstakar lestrarkennsluaðferðir: Í umfjöllun um Finnish Lessons 3.0 kemur fram að: Lestur ungmenna hefur almennt dregist saman og lestraránægja þeirra hefur dvínað. Það að horfa aðeins á lestrarpróf gefi of þrönga mynd af lestrarfærni. [cora.ucc.ie] Sahlberg tengir þetta hins vegar ekki við ákveðna kennsluaðferð – heldur við breytingar í samfélagi, menningu og skólaumhverfi. Niðurstaða: Pasi Sahlberg skrifar ekki með beinum hætti um tilteknar aðferðir í lestrarkennslu (t.d. hljóðaaðferð vs. heildaraðferð). Hann talar um heildræna nálgun í kennslu, treystir kennurum til að velja aðferðir, undirstrikar að leikur og jafnræði skipti mestu, leggur áherslu á að læsi sé hluti af víðara menntunarumhverfi en ekki tæknileg „aðferð“. Að lokum Það er ærin ástæða til ráðast í að þróa læsismenntun í íslenskum grunnskólum. Við vitum töluvert um hvernig hún á sér stað á yngsta stigi grunnskóla og flest bendir raunar til að hún sé þar í bærilegu lagi. Aftur á móti vitum við miklu minna um hvernig læsiskennsla og -nám fer fram á mið-og unglingastigi en það sem við þó vitum bendir til að einmitt þar þurfi að ráðast í markvisst þróunarstarf, meðal annars til að efla lesskilning og ályktunarhæfni, sem þarf til að takast á við krefjandi texta í mismunandi námsgreinum. Til þess þarf þó hvorki að kveikja neista né tendra ófriðarbál heldur leita leiða sem fela í sér heildræna nálgun í kennslu, traust til kennara til að velja og þróa aðferðir í samráði við ráðgjafa, viðleitni til að auka bóklestur og lestraránægju allra nemenda – ekki bara þeirra sem hafa íslensku að móðurmáli – og áherslu á að læsi sé félagsmenningarlegt fyrirbæri og hluti af víðara menntunarumhverfi en ekki tæknileg „aðferð“ sem þar sem hægt er að smætta árangurinn niður í mælanlegar eindir. Höfundur er fyrrverandi prófessor við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason Skoðun Skoðun Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Sjá meira
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun