Vaktin: Stofna vinnuhóp um framtíð Grænlands Samúel Karl Ólason og Rafn Ágúst Ragnarsson skrifa 14. janúar 2026 11:40 Fundinum lauk um fimmleytið að íslenskum tíma. AP Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna, Danmerkur og Grænlands, auk varaforseta Bandaríkjanna, hafa sammælst um að stofna vinnuhóp um framtíð Grænlands. Ráðherrarnir og varaforsetinn funduðu á skrifstofum JD Vance, varaforseta Bandaríkjanna. Eftir fundinn sögðu Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, og Vivian Motzfeldt, utanríkisráðherra Grænlands, að enn væri uppi ágreiningur um hvernig öryggis- og varnarmálum yrði best háttað á Grænlandi. Hins vegar eygðu þau von um að hægt yrði að finna lendingu í málinu sem kæmi til móts við áhyggjur Bandaríkjanna og virti á sama tíma „rauðar línur“ Danmerkur. Sjá einnig: Fundurinn í Washington gæti reynst örlagaríkur Donald Trump Bandaríkjaforseti ítrekaði eftir fundinn að Bandaríkin „þörfnuðust“ Grænlands og sagði að Danir gætu ekki staðið einir að vörnum eyjunnar. Hann hefur áður sagt að það sé nauðsynlegt að Bandaríkin eignist Grænland en Rasmussen ítrekaði fyrir sitt leyti að bæði Danir og Grænlendingar væru afar opnir fyrir því að ræða aukinn hernaðarviðbúnað Bandaríkjanna á Grænlandi. Þá benti hann á að það hefðu raunar verið Bandaríkjamenn sem hefðu ákveðið að draga úr viðbúnaði á eyjunni. Trump sagði að einhver lausn yrði fundin á málinu. Hér fyrir neðan má finna vaktina okkar, þar sem við fylgdust með þróun mála. Ef hún birtist ekki er ráð að endurhlaða síðunni (e. refresh).
Ráðherrarnir og varaforsetinn funduðu á skrifstofum JD Vance, varaforseta Bandaríkjanna. Eftir fundinn sögðu Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, og Vivian Motzfeldt, utanríkisráðherra Grænlands, að enn væri uppi ágreiningur um hvernig öryggis- og varnarmálum yrði best háttað á Grænlandi. Hins vegar eygðu þau von um að hægt yrði að finna lendingu í málinu sem kæmi til móts við áhyggjur Bandaríkjanna og virti á sama tíma „rauðar línur“ Danmerkur. Sjá einnig: Fundurinn í Washington gæti reynst örlagaríkur Donald Trump Bandaríkjaforseti ítrekaði eftir fundinn að Bandaríkin „þörfnuðust“ Grænlands og sagði að Danir gætu ekki staðið einir að vörnum eyjunnar. Hann hefur áður sagt að það sé nauðsynlegt að Bandaríkin eignist Grænland en Rasmussen ítrekaði fyrir sitt leyti að bæði Danir og Grænlendingar væru afar opnir fyrir því að ræða aukinn hernaðarviðbúnað Bandaríkjanna á Grænlandi. Þá benti hann á að það hefðu raunar verið Bandaríkjamenn sem hefðu ákveðið að draga úr viðbúnaði á eyjunni. Trump sagði að einhver lausn yrði fundin á málinu. Hér fyrir neðan má finna vaktina okkar, þar sem við fylgdust með þróun mála. Ef hún birtist ekki er ráð að endurhlaða síðunni (e. refresh).
Grænland Danmörk Bandaríkin Donald Trump Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Fleiri fréttir Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Sjá meira